mynd af atburðinum
Skátamessa í Úlfljótsvatnskirkju
Laugardagur 29. ágúst
kl. 14:00 - 16:00
Úlfljótsvatnskirkja
  • Fjölskyldur
  • Fullorðnir
  • Eldri borgarar

Skátamessa í ÚLFLJÓTSVATNSKIRKJU kl 14. Sr. Kristín Þórunn Tómasdóttir sóknarprestur þjónar fyrir altari og prédikar. Skátar leiða söng og lestra og segja frá skátalífinu við Úlfljótsvatn. Kirkjukaffi í Gilwellskálanum með staðarleiðsögn, einnig verður Skátasafnið opið. Innilega velkomin!