
Stuðningshópur Píeta
Mánudagur 09. mars
kl. 20:00 - 22:00
Akureyrarkirkja- Fjölskyldur
Píeta samtökin eru með stuðningshóp í Akureyrarkirkju fyrir þau sem misst hafa ástvin í sjálfsvígi. Jafningjastuðningur hefur margsannað sig þegar kemur að áföllum og sorgum lífsins.
Hópurinn hittist annan mánudag í mánuði kl: 20:00 í kapellu Akureyrarkirkju við Eyrarlandsveg.
Þetta eru innihaldsríkir og styrkjandi fundir undir handleiðslu Hildar Eirar Bolladóttur.
Dagskrá vor 2026:
12. janúar kl. 20:00
9. febrúar kl. 20:00
9. mars kl. 20:00
13. apríl kl. 20:00