mynd af atburðinum
J.S. Bach á þriðjudagskvöldum
Þriðjudagur 11. ágúst
kl. 20:00 - 20:30
Dómkirkjan í Reykjavík
  • Fullorðnir
  • Ferðamenn
  • Pör
  • Eldri borgarar
  • Tónlist
Píanóleikarinn Ólafur Elíasson leikur nokkrar af 48 prelódíum og fúgum Bachs á flygilinn í Dómkirkjunni öll þriðjudagskvöld.
Aðgangur ókeypis.
Ólafur var nemandi Rögnvaldar Sigurjónssonar píanóleikara á Íslandi en stundaði svo framhaldsnám fyrst í París hjá hinum heimsþekkta píanóleikara Vlado Perlemuter og síðar í Englandi, m.a. við konunglega tónlistarháskólann í London (Royal Academy of Music). Hann hefur komið fram í þekktum tónlistahúsum á borð við Wigmore Hall í London, Carnegie Hall í New York og Kennidy Center í Washington.
Síðan 2016 hefur Ólafur leikið tónlist eftir J.S. Bach á vikulegum tónleikum í Dómkirkjunni í Reykjavík allt árið um kring.