mynd af atburðinum
Sumarmessa með íslenskum hljóðfærum
Sunnudagur 19. júlí
kl. 11:00 - 13:00
Garðakirkja
  • Tónlist
  • Fullorðnir
  • Eldri borgarar

Næsta sunnudag mun Sigurvin Lárus Jónsson leiða guðsþjónustu í Garðakirkju, þar sem Örn Magnússon organisti og Ásta Sigríður Arnardóttir sjá um tónlist. Örn er manna fróðastur um íslensk hljóðfæri og mun í guðsþjónustunni og messukaffinu á eftir segja frá sögu þeirra og sýna. Ásta Sigríður er söngkona, sem útskrifaðist frá tónlistardeild Listaháskóla Íslands árið 2023.

Verið innilega velkomin í Garðakirkju á sunnudag kl. 11 og kaffi í Króknum á eftir.