
Félagsstarf eldri borgara í Bústaðakirkju - Sr. Benedikt Sigurðsson lítur í heimsókn með harmonikkuna - Miðvikudagur, 28. október kl. 13:00
Miðvikudagur 28. október
kl. 13:00 - 16:00
Bústaðakirkja- Eldri borgarar
Sr. Benedikt Sigurðsson er prestur í Garðasókn. Hann er einnig fær harmonikkuleikari og er stundum kallaður "Benni á nikkunni". Hann hefur unnið mikið að tónlist með t.a.m. Heru Björk, Bjartmari Guðlaugs, KK, Pálma Sigurhjartar, hljómsveitinni Albatross, Jógvani Hansen, Ara Ólafssyni og fl og fl. og gaf svo út hljómplötu árið 2020.
Dagskráin er glæsileg í eldri borgara starfinu. Og kaffiveitingarnar ekki síðri en Andrea Þóra Ásgeirsdóttir kirkjuhaldari sér um veitingar.
Verið hjartanlega velkomin í eldri borgarastarfið í Bústaðakirkju á miðvikudögum kl. 13 - 16.