
- Foreldrar
- Eldri borgarar
- Fjölskyldur
- Fullorðnir
**Foreldramorgunn – daggæsla barna**
**Miðvikudaginn 7. október kl. 10–12 í Guðríðarkirkju**
Á foreldramorgni miðvikudaginn 7. október fáum við góða heimsókn frá daggæsluráðgjafa Reykjavíkurborgar.
Fræðslan hefst um kl. 10:30 og verður fjallað um daggæslu barna og fyrstu skrefin þegar farið er að huga að dagforeldri eða annari daggæslu.
Rætt verður meðal annars um hvernig dagforeldrakerfið virkar, hvað gott er að hafa í huga þegar dagvistun er valin, niðurgreiðslur, gæði og eftirlit, aðlögun barns og annað sem foreldrar velta fyrir sér.
Stundin verður afslöppuð og verður góður tími fyrir spurningar og samtal. Það er því tilvalið að koma með þær vangaveltur sem þið hafið.
Foreldramorgnar eru alla miðvikudaga kl. 10–12 og eru fyrir foreldra í fæðingarorlofi, verðandi foreldra og litlu krílin þeirra.
Kaffi, kruðerí og notaleg samvera í boði.
Öll hjartanlega velkomin!