mynd af atburðinum
Sumartónleikar í Akureyrarkirkju 40 ára
Sunnudagur 19. júlí
kl. 17:00 - 18:00
Akureyrarkirkja
  • Fjölskyldur
  • Fullorðnir
  • Pör
  • LGBTQ+
  • Ferðamenn

Sumartónleikar í Akureyrarkirkju 40 ára

Tríó Öræfi ásamt Arnaldi Arnarsyni gítarleikara - Zingara og frumflutningur!

Zingara er yfirskrift tónleika Tríós Öræfa ásamt Arnaldi Arnarsyni á afmælisári Sumartónleika í Akureyrarkirkju, en þeir eru þriðju tónleikarnir á hátíðinni í ár.

Tríó Öræfi er skipað Sóleyju Þrastardóttur þverflautuleikara, Þórunni Harðardóttur víóluleikara og Ásdísi Arnardóttur sellóleikara. Ásamt Arnaldi Arnarsyni gítarleikara flytur tríóið verk eftir Josef Kreuzer, Franz Schubert/W. Matiegka og Nicolo Paganini. Auk þess frumflytja fjórmenningarnir nýtt verk eftir Oliver Kentish, sem pantað var í tilefni 40 ára afmælis Sumartónleika í Akureyrarkirkju!

Hljóðfærasamsetningin er óvenjuleg, og gefst ekki alloft tækifæri til að heyra samspil þessara fjögurra hljóðfæra. Í tónverkunum njóta raddir hljóðfæranna sín sérlega vel og gefst hér því kjörið tækifæri að heyra tónlist sem ekki er á boðstólum dag hvern.

Menningarsjóður Akureyrarbæjar, sóknarnefnd Akureyrarkirkju og Hérðassjóður Eyjafjarðar- og Þingeyjarprófastsdæmis styrkja Sumartónleika í Akureyrarkirkju.

Viðburðadagatal Listasumars má finna á listasumar.is