mynd af atburðinum
Sálmadjass í Bleikum október í Bústaðakirkju
Miðvikudagur 07. október
kl. 12:05 - 14:05
Bústaðakirkja
  • Eldri borgarar
  • Tónlist

Hádegistónleikar fara fram í Bústaðakirkju miðvikudaginn 7. október nk. kl. 12:05. 

Sigurður Flosason saxafónleikari og söngmálastjóri þjóðkirkjunnar og Jónas Þórir kantor Bústaðakirkju munu djassa sálma á fyrstu hádegistónleikunum í Bleikum október í Bústaðakirkju, þetta árið. Ásamt þeim verða Gunnar Hrafnsson á kontrabassa og Einar V. Scheving á trommur. 

Aðgangur er ókeypis en tekið verður við frjálsum framlögum til Ljóssins. 

Að tónleikum loknum verður boðið upp á léttar veitingar í safnaðarheimilinu. 

Verið hjartanlega velkomin á hádegistónleika í Bústaðakirkju. 

Hér má sjá dagskrána framundan í Bleikum október.