mynd af atburðinum
Söguganga: Fornminjar í Innri-Njarðvík
Fimmtudagur 13. ágúst
kl. 20:00 - 21:00
Njarðvíkurkirkja Innri
  • Eldri borgarar
  • Fullorðnir

Þór Hjaltalín, sviðsstjóri hjá Minjastofnun Íslands, leiðir sögugöngu um Innri-Njarðvík fimmtudaginn 13. ágúst kl. 20. Fjallað verður um fornminjar sem má víða finna í Innri-Njarðvík og hlutverk Minjastofnunar.

Gangan hefst við kirkjuna í Innri-Njarðvík og er reiknað með að hún taki um klukkustund.

Sögugangan er á vegum Byggðasafns Reykjanesbæjar og er þátttaka ókeypis. Verið öll velkomin!

Þetta er fyrsta af fjórum sögugöngum sem safnið stendur fyrir í ár. Hinar göngurnar verða 20. ágúst, 27. ágúst og 6. september.