
- Fullorðnir
Í tilefni af 50 ára afmæli Garðabæjar er boðið upp á sögugöngu og leiðsögn um útilistaverk í Garðabæ með Erlu Bil Bjarnadóttur.
👉Gangan hefst við útilistaverkið á kirkjutorgi sunnan við Vídalínskirkju. Gengið verður á milli sjö útilistaverka samkvæmt lista hér fyrir neðan.
Gangan er létt við allra hæfi, staldrað við hvert verk, skoðað og fræðst um það.
Uppspretta á Kirkjutorgi við Vídalínskirkju
Höfundur Pétur Bjarnason.
Afhjúpað 1995.
Í mótun á inntorgi Garðatorgs 7
Höfundur Sigrún Guðmundsdóttir.
Afhjúpað 1988.
Þrenning á lóð Garðaskóla.
Höfundur Sigurjón Ólafsson 1970.
Afhjúpað 1990.
Við Ægisdyr á opnu svæði við Ásgarð.
Höfundur Pétur Bjarnason.
Afhjúpað 1993.
Landlagsmynd við gatnamót Vífilsstaðavegar og Hafnarfjarðarvegar.
Höfundur: Brynhildur Þorgeirsdóttir.
Afhjúpað 1997.
Hönnun á opnu svæði milli Silfurtúns og Hafnarfjarðarvegar.
Höfundur Magnús Tómasson.
Afhjúpað 2001 á 25 ára afmæli Garðabæjar.
Serenaða (kvöldljóð) á opnu svæði við Silfurtún.
Höfundur Helgi Gíslason.
Afhjúpað 2001 á 25 ára afmæli Garðabæjar.
Gangan er öllum opin og þátttaka er ókeypis.