
Örn Árnason og Jónas Þórir á hádegistónleikum
Miðvikudagur 28. október
kl. 12:05 - 14:05
Bústaðakirkja- Eldri borgarar
- Tónlist
Hádegistónleikar fara fram miðvikudaginn 28. október kl. 12:05 í Bústaðakirkju. Örn Árnason leikari og Jónas Þórir organisti flytja vel valdar revíur og gamanmál.
Jónas Þórir organisti Bústaðakirkju hefur veg og vanda að dagskránni í Bleikum október.
Aðgangur á alla viðburði í Bleikum október í Bústaðakirkju er ókeypis. Tekið er við frjálsum framlögum til Ljóssins og svo eru bleiku slaufur Krabbameinsfélagsins til sölu. Léttar veitingar í safnaðarheimilinu að tónleikum loknum.
Verið hjartanlega velkomin á tónleika í Bleikum október í Bústaðakirkju.