
Barnamessa og skírn
Sunnudagur 11. október
kl. 11:00 - 13:00
Bústaðakirkja- Börn
- Fjölskyldur
Barnamessa fer fram í Bústaðakirkju sunnudaginn 11. október nk. kl. 11:00. Jónas Þórir verður á flyglinum og Sólveig og séra Þorvaldur leiða stundina.
Barn verður borið til skírnar.
Biblíusaga, bænavers og barnasálmar.
Samvera í safnaðarheimilinu að athöfn lokinni, þar sem boðið verður upp á ávexti, brauð, álegg og léttar veitingar.
Verið hjartanlega velkomin í barnamessu í Bústaðakirkju.