
- LGBTQ+
- Fullorðnir
- Ferðamenn
- Fjölskyldur
- Pör
- Einleypir
Gleðigangan er hápunktur Hinsegin daga. Í henni sameinast lesbíur, hommar, tví- og pankynhneigðir, trans fólk, intersex fólk og aðrir hinsegin einstaklingar ásamt fjölskyldum sínum og vinum til að staðfesta tilveru sína og minna á baráttumál sín.
Gangan er í senn kröfuganga hinsegin fólks, sem kallar eftir jafnrétti, vitundarvakningu og útrýmingu mismununar, sem og vettvangur til að fagna því sem hefur unnist í baráttunni.
Gleðigangan 2026 verður gengin laugardaginn 8. ágúst. Gangan fer af stað frá Hallgrímskirkju stundvíslega kl. 14:00.
Gengið er frá Hallgrímskirkju eftir Skólavörðustíg, Bankastræti, Lækjargötu og Fríkirkjuvegi. Gangan endar við gatnamót Fríkirkjuvegar og Skothúsvegar, en atriði halda áfram inn Sóleyjargötu og þaðan inn í Hljómskálagarðinn þar sem útitónleikar taka við.
Útitónleikarnir verða táknmálstúlkaðir og rittúlkaðir.
Upplýsingar um aðgengi má finna hér: https://hinsegindagar.is/adgengi-a-vidburdum/
Skráðu þig eða hópinn þinn til þátttöku: https://hinsegindagar.is/gledigangan/