
Tónskóli kirkjunnar
Tónskóli Þjóðkirkjunnar er sérhæfður skóli í kirkjutónlist á Íslandi. Þar er boðið upp á nám í orgelleik og kirkjutónlist, auk námskeiða og símenntunar.
Skólinn varðveitir einnig bóka- og nótnasafn Þjóðkirkjunnar og styrkir lifandi tónlistarstarf í kirkjum landsins. Markmið Tónskólans er að efla lifandi kirkjutónlist og styðja við menningu og helgihald um land allt.
Nám við Tónskóla þjóðkirkjunnar
Í skólanum er boðið upp á kennslu í orgelleik fyrir alla aldurshópa og nám við framhaldsdeild í kirkjutónlist sem hentar vel þeim sem vilja undirbúa sig fyrir frekara nám í kirkjutónlist og kórstjórn. Einnig nýtist það tónlistarmönnum sem vilja bæta við sig fagþekkingu á sviði kirkjutónlistar og þeim sem kjósa tónlistarnám á breiðum grunni. Skólinn stendur enn fremur fyrir öflugri endurmenntun, bæði einkatímum og námskeiðum.

Almennt um orgelnám við Tónskóla þjóðkirkjunnar
Í orgelnáminu kynnast nemendur orgelverkum frá ólíkum tímabilum og í ýmsum stíltegundum. Einnig þjálfast nemendur í að leika undir og leiða almennan safnaðarsöng á orgel og í leik af fingrum fram. Þegar komið er upp í miðnám í orgelleik bætist við nám í píanóleik og á framhaldsstigi nám í hljómborðsleik á píanó. Kennt er samkvæmt námskrá hljómborðshljóðfæra, gefinni út af menntamálaráðuneytinu.
Nemendur eldri en 18 ára sem hyggja á nám í orgelleik þurfa að eiga viðtal við skólastjóra.
Miðað er við að nemendur séu orðnir 8-9 ára gamlir áður en nám í orgelleik hefst.
Lýsing á námi
Grunnnám
Í grunnnámi fær orgelnemandi 30 til 45 mínútur á viku eftir aldri og þroska nemenda. Þegar nemandi er komin áleiðis í orgelnáminu bætist við kennsla í tónfræði og tónheyrn samkvæmt námskrá. Nemandi þarf að ljúka grunnprófi í tónfræðagreinum áður en orgelpróf er tekið upp í miðnám. Kennt er samkvæmt námskrá Tónskóla þjóðkirkjunnar og námskrá hljómborðshljóðfæra, sem gefin er út af menntamálaráðuneytinu.
Miðnám
Í miðnámi fær orgelnemandi 60 mínútur á viku í einkakennslu á orgel. Ef nemendur hafa ekki stundað píanónám er mælst til þess að nemendur skrái sig í nám á píanó og í tónfræðagreinum við annan tónlistarskóla en nemandi þarf að bæði að ljúka miðprófi á píanó og á orgel auk tónfræðagreina áður en nám á framhaldsstigi í orgelleik getur hafist. Kennt er samkvæmt námskrá Tónskóla þjóðkirkjunnar og námskrá hljómborðshljóðfæra, sem gefin er út af menntamálaráðuneytinu.
Framhaldsnám
Í framhaldsnámi fær orgelnemandi 60 mínútur á viku í einkakennslu. Kennt er samkvæmt námskrá Tónskóla þjóðkirkjunnar og námskrá hljómborðshljóðfæra, sem gefin er út af menntamálaráðuneytinu.
Námsmat
Grunnnám
Nemendur í grunnnámi fá umsögn frá kennara fyrir frammistöðu og ástundun í lok hverrar annar. Miðað er við að nemendur komi fram a.m.k. einu sinni á hverri önn í guðsþjónustu þar sem þeir leiða söng við orgelið og einu sinni á tónleikum. Áfangapróf eru tekin samkvæmt námskrá Tónskólans og menntamálaráðuneytisins.
Miðnám
Nemendur í miðnámi fá umsögn frá kennara fyrir frammistöðu og ástundun í lok hverrar annar. Miðað er við að a.m.k. einu sinni á önn komi nemendur fram á tónleikum og í guðsþjónustu þar sem þeir leiða söng við orgelið. Áfangapróf eru tekin samkvæmt námskrá Tónskólans og menntamálaráðuneytisins.
Framhaldsnám
Nemendur í framhaldsnámi fá umsögn frá kennara fyrir frammistöðu og ástundun í lok hverrar annar. Miðað er við að a.m.k. einu sinni á önn komi nemendur fram á tónleikum og í guðsþjónustu þar sem þeir leiða söng við orgelið. Áfangapróf eru tekin samkvæmt námskrá Tónskólans og menntamálaráðuneytisins.
Framhaldsprófstónleikar
Að loknu framhaldsprófi í orgelleik og lokaprófi í hljómborðsleik fara fram framhaldsprófstónleikar í orgelleik. Nemandi leikur 30 til 60 mínútna efnisskrá að eigin vali. Hluti efnisskrárinnar má vera spuni eða flutningur á eigin tónsmíð.
Píanóleikur með miðnámi í orgelleik
Hafi nemandi ekki stundað píanónám áður bætist við nám í píanóleik þegar komið er á miðstig í orgelleik.
Mælst er til þess að nemendur skrái sig í nám á píanó og í tónfræðagreinum við annan tónlistarskóla en nemandi þarf bæði að ljúka miðprófi á píanó og á orgel auk tónfræðagreina áður en nám á framhaldsstigi í orgelleik getur hafist.
Tónfræðagreinar
Miðað er við að nemendur hafi náð 11 ára aldri áður en formlegt nám í tónfræði hefst. Fram að því fer tónfræðikennsla fram samhliða hljóðfærakennslunni. Kennt er samkvæmt námskrá menntamálaráðuneytisins. Miðað er við að nemendur ljúki grunn- og miðprófum í tónfræðagreinum samhliða sambærilegum áföngum í orgelnáminu.
Almennt um framhaldsdeild í kirkjutónlist
Nám við framhaldsdeild í kirkju tónlist er á framhaldsskólastigi og veitir góðan grunn fyrir frekari sérhæfingu á sviði kirkjutónlistar. Námið hentar einnig tónlistarfólki sem hefur annan bakgrunn en kirkjutónlist og hyggur á starf við kirkjur og nemendum sem kjósa tónlistarnám á breiðum grunni. Framhaldsdeildin skiptist í tvö kjörsvið: kórstjórn og orgelleik. Hægt er að ljúka framhaldsprófi í kirkjutónlist af öðru kjörsviðinu, en til þess að ljúka kantorsprófi þarf nemandi að ljúka námi af báðum kjörsviðum. Námið er metið til eininga í framhaldsskólum og er lágmarkskrafa um nám til starfsréttinda til starfs sem organisti og/eða kórstjóri við þjóðkirkjuna skv. starfsreglum hennar.
Í náminu fá nemendur verklega kennslu á orgel, í söng, kórstjórn og hljómborðsfræði auk bóklegra greina.
Inntökuskilyrði
Kórstjórnarkjörsvið
Nemandi þarf að hafa lokið miðprófi á píanó og í tónfræðagreinum auk matsprófs og viðtals. Gera má ráð fyrir tveggja til þriggja ára námstíma.
Orgelkjörsvið
Nemandi þarf að hafa lokið miðprófi á píanó, orgel og í tónfræðagreinum auk matsprófs og viðtals. Gera má ráð fyrir tveggja til þriggja ára námstíma.
Nánari upplýsingar um námið, áfangalýsingar, yfirlit kjörsviða o.fl. má finna í námskrá Tónskólans.
Umsóknarfrestur fyrir nám við framhaldsdeild í kirkjutónlist og orgelnám barna skólaárið 2026 - 2027 er 15. maí 2026.
Umsóknareyðublað má nálgast hér að neðan. Til að sækja um þarf að hlaða eyðublaðinu niður og senda það útfyllt á tonskoli@kirkjan.is.
Athugið að ekki þarf að fylla út umsóknareyðublað varðandi skráningu í endurmenntun og á sérnámskeið.
Orgelnám (heill vetur)
Nám fyrir börn yngri en 18 ára
kr. 110.000,-
Framhaldsdeild í kirkjutónlist (heill vetur)
Eitt fag
kr. 150.000,-
Fullt nám (tvö fög eða fleiri)
kr. 300.000,-
Nám við framhaldsdeild skólans miðast við heil skólaár þannig að ekki eru teknir inn nýir nemendur eftir að skólárið er byrjað. Öðru máli gegnir um endurmenntun og sérnámskeið en þar er hægt að skrá sig hvenær sem er skólaársins.
Brottfall úr námi
Sú regla gildir að innheimt er fyrir heila byrjaða önn í námi með þeirri undantekningu að nemandi sem hverfur frá námi strax á fyrsta mánuði skólaársins, þ.e. fyrir 1. október, greiðir aðeins 25% skólagjaldsins.
Að öðru leyti eru skólagjöld ekki endurgreidd.
Endurmenntun og námskeið
Einleiksáfangi á orgel (inntökuskilyrði - kantorspróf)
28 tímar (heill vetur) - kr. 225.000,
Einleiksáfanga lýkur með einleikstónleikum
Einkatímar í orgelleik (40 mínútur hver tími, engin inntökuskilyrði)
3 tímar - kr. 30.000,-
5 tímar - kr. 50.000,-
14 tímar (ein önn) - kr. 110.000,-
Einkatímar í söng og raddbeitingu og hljómborðsfræði (40 mínútur hver tími, engin inntökuskilyrði)
3 tímar - kr. 30.000,-
5 tímar - kr. 50.000,-
Kórstjórn, einn hóptími á viku í eina önn
kr. 95.000,-
Verð á sérstæðum námskeiðum eru auglýst sérstaklega, eða þegar námskeið fara fram.
Allar nánari upplýsingar um nám við endurmenntunardeild er að finna undir flipanum Endurmenntun og námskeið hér að ofan.