Elskaðu þann sem hatar þig

Það er ekkert mál að elska þau sem elska okkur, eða þau sem eru okkur sammála, eða þau sem samþykkja okkur. En að elska einhvern sem elskar þig ekki til baka, sem fyrirlítur þig, sem brýtur gegn þér er nánast óhugsandi.

Náð og friður sé með ykkur öllum frá Drottni okkar Jesú Kristi. Amen.

Ég á góðan vin sem tilheyrir hinsegin samfélaginu. Hann er trans-karlmaður sem þýðir að honum var úthlutað kvenkyn við fæðingu. Vinur minn fór í hormónameðferð og gekkst loks undir kynleiðréttingar aðgerð eftir að hann varð sjálfráða. Ég man vel eftir því þegar hann kom út úr skápnum, aðeins 15 eða 16 ára, dauðhræddur og kvíðinn við alla höfnun frá fjölskyldu og vinum. Hann óttaðist að ég, vinur hans, myndi aldrei vilja sjá hann framar. Auðvitað komu þessar fréttir mér á óvart en það merkilega er að í dag líður mér eins og að hann hafi alltaf verið karlmaður.

Ég er þakklátur fyrir vináttu okkar, og þó við séum ekki alltaf sammála þá hefur hún gefið mér mikilvæga innsýn inn í heim hinsegin fólks. Hans reynsla sem trans karlmaður hefur hjálpað mér að sjá hluti sem ég myndi ekki annars taka eftir. Gott dæmi um þetta er þegar Charlie Kirk, áhrifavaldur frá Bandaríkjunum, var myrtur. Hann var þekktur fyrir andstöðu sína gegn fóstureyðingum og trans fólki. Þegar hann lét lífið brutust út fagnaðarlæti meðal sums hinsegin fólks á samfélagsmiðlum. Þetta sýnir hve hættulegur „við á móti þeim“ hugsunarháttur er, þegar við fögnum því að maður var drepinn.

Ég spurði vin minn af forvitni: „Hvað finnst þér um þessi fagnaðarlæti? Þessi maður átti konu og börn og nú er hann látinn.“ Vinur minn svaraði á þennan hátt sem ég umorða hér: „Auðvitað er það hræðilegt þegar einhver er myrtur og börn missa föður sinn, en þú verður að skilja að þessi maður útbreiddi hatur og fordóma gagnvart hinsegin fólki. Þó svo að hann hefði aldrei gert flugu mein þá hefði orðræða hans óbein áhrif á líf hinsegin fólks. Ég sé fréttir í hverri viku um trans fólk sem var drepið og enginn talar um það, enginn syrgir það. Svo nei, ég get ekki sagt að ég syrgi þennan mann.“

Það er mikil reiði og sorg í orðum vinar míns. Ég segi ykkur þessa sögu vegna þess að mér finnst hún lýsa svo vel hinu mannlega eðli. Við getum orðið bálreið og tilfinningarrík þegar einhver óskar okkur illt vegna þess sem við erum. Það er okkur mögulegt að lifa í samfélagi með fólki sem er okkur ósammála en krefjandi að umgangast fólk sem telur okkur óæðri. Hvað þá að elska óvin þinn eins og frelsarinn biðlar til okkar að gera? Við getum varla umborið hvert annað á stundum en að virkilega elska einhvern sem við erum ósammála eða jafnvel fyrirlítum? Hvernig er þetta hægt? Hvernig gæti vinur minn elskað einhvern sem hatar það sem hann er, einhvern sem vill útrýma öllu trans fólki? Það er vægast sagt ómögulegt. En Jesús gefur okkur leið til að reyna.

Þegar ágreiningur og ósætti eiga sér stað, gefur frelsarinn þessi ráð: „Ef bróðir þinn syndgar gegn þér skaltu fara og tala um fyrir honum og sé það ykkar einna í milli. Láti hann sér segjast hefur þú endurheimt bróður þinn. En láti hann sér ekki segjast skaltu taka með þér einn eða tvo að ‚hvert orð sé staðfest með framburði tveggja eða þriggja vitna‘. Ef hann skeytir þeim ekki þá seg það söfnuðinum. Skeyti hann ekki söfnuðinum heldur, sé hann þér sem heiðingi eða tollheimtumaður.“

Heiðingjar og tollheimtumenn voru ekki vel liðnir á meðal Gyðinga á þessum tíma. Þeir voru ekki álitnir hluti af Guðs þjóð, óhreinir og óheiðalegir villumenn. Er Jesús þá að segja að það sé í lagi að útiloka fólk? Svo sannarlega ekki! Hvert fór Jesús? Til tollheimtumanna og heiðingja með kærleikann að vopni. Samverska konan við brunninn, miskunnsami Samverjinn í dæmisögunni, Kanverska konan, Rómverski hundraðshöfðinginn, Sakkeus tollheimtumaður, allt er þetta fólk sem samfélag þess tíma útilokaði en Jesús útilokaði það aldrei. Hann gaf því tækifæri til að koma til sín. Hann opnaði leið þess með kjarna fagnaðarerindisins, hinu tvöfalda kærleiksboðorði. Þetta er eitthvað sem er auðveldara sagt en gert.

Það er ekkert mál að elska þau sem elska okkur, eða þau sem eru okkur sammála, eða þau sem samþykkja okkur. En að elska einhvern sem elskar þig ekki til baka, sem fyrirlítur þig, sem brýtur gegn þér er nánast óhugsandi. En við getum með Jesú opnað á þann möguleika að fyrirgefa. Leyfa fólki að fá tækifæri til að iðrast gjörða sinna, þroskast, vaxa og ná sátt. Við erum ekki hæf til þess að sýna þá skilyrðislausu ást sem Jesús sýnir á krossinum. Það er ekki okkar hlutverk að frelsa aðra með krossdauða en við getum reynt að endurheimta náungann okkar. Aðeins Kristur getur dáið fyrir syndir okkar. Aðeins hann gat verið sárþjáður, fyrirlitinn, hæddur, bölvaður af sinni eigin þjóð, og aldrei hætt að elska. Hann segir „Faðir, fyrirgef þeim, því að þeir vita ekki hvað þeir gjöra.“

Guð hefur oft verið gagnrýndur fyrir dóm sinn í gamla testamentinu þar sem reiði Guðs dundi yfir mannkyninu. Hann eyddi öllum, bæði góðum og vondum, með alheimsflóði. Hann setti Ísrael í forgang og hvatti þjóðina til að eyða öðrum þjóðum sem saurguðu landið. Fólkið kannast við þann hugsunarhátt að elska náungann en að hata óvini sína. En Jesús kom með nýtt boðorð, nýjan skilning, fyrirgefninguna. Drottinn er lifandi Guð og lifandi orð. Orðið kom á jörðina í syninum Jesú Kristi, át og drakk með öllu fólki, vondu og góðu. Hann sá virði í öllum sem hann hitti og dó fyrir syndir allra, allra vondra og allra góðra. Þetta gætum við aldrei. Við viljum vera umburðarlynd og reynum okkar besta en til þess þurfum við á Jesú að halda sem er kærleikurinn sem breiðir yfir allt, trúir öllu, vonar allt, umber allt.

Dýrð sé Guði föður, syni og heilögum anda, svo sem var í uppafi, er, og verður um aldir alda. Amen.