Hver einasti ljósgeisli skiptir máli

Myrkrið er bersýnilegra en áður og er nær okkur. Við fáum allar upplýsingar á ljóshraða í gegnum veraldarvefinn og samfélagsmiðla. Það er enginn skortur af neikvæðni og niðurrifi á þeim bæ og eru skoðanakerfin vægast sagt eitruð. Fólk fer í fylkingar yfir hinum ýmsu málum vegna ótta og óöryggis. Þar sem óttinn þrífst hverfur skynsemi og þegar hún hverfur verður engin ígrundun, engin rökhugsun, engin umræða. Það sem er eftir verður er hugsunarháttur sem einkennist af „við gegn þeim“ viðhorfi þar sem alhæfing er algjör. Þetta viðhorf þykir mér allt of algengt í dag. Það leiðir okkur aðeins á einn veg og þar er ekkert ljós.

Það getur verið erfitt að finna ljósið þegar öll önnur ljós eru slökkt. Myrkrið hefur ávallt verið hluti af þessum heimi, jafnvel í upphafi er það grúfði yfir djúpinu og andi Guðs sveif yfir vötnunum. Myrkrið er bersýnilegra en áður og er nær okkur. Við fáum allar upplýsingar á ljóshraða í gegnum veraldarvefinn og samfélagsmiðla. Það er enginn skortur af neikvæðni og niðurrifi á þeim bæ og eru skoðanakerfin vægast sagt eitruð. Fólk fer í fylkingar yfir hinum ýmsu málum vegna ótta og óöryggis. Þar sem óttinn þrífst hverfur skynsemi og þegar hún hverfur verður engin ígrundun, engin rökhugsun, engin umræða. Það sem eftir verður er hugsunarháttur sem einkennist af „við gegn þeim“ viðhorfi þar sem alhæfing er algjör. Þetta viðhorf þykir mér allt of algengt í dag. Það leiðir okkur aðeins á einn veg og þar er ekkert ljós.

Jesús Kristur er ekki þar enda var enginn ótti í honum og öryggið einkenndi hans kærleika. „Komið til mín, öll þér sem erfiðið og þunga eruð hlaðin, og ég mun veita yður hvíld.“ Þeir sem komu voru Gyðingar, Samverjar, Kanverjar og Rómverjar. Fólk sem fyrirleit hvert annað sameinaðist í Kristi. Þarna voru karlar, konur og börn. Þau komu vegna þess að hjá Jesú var enginn ótti heldur öryggi og hjálparhönd. Hana fengu þau ekki hjá yfirvöldum Gyðinga sem vísuðu þeim á bug. Þar þreifst ótti og óöryggi, sem síðar varð að hatri og ofbeldi og leiddi til þess að frelsarinn Jesús var krossfestur. Saga Krists sýnir okkur hvað óttinn getur gert ef hann ræður allri för. Því minnir Jesús okkur á að við erum salt jarðarinnar og meira en það, við erum ljós og getur minnsta birta skipt sköpum í lífi hverrar manneskju.

Þetta þema innleiddi höfundurinn Tolkien í skáldsögu sína Hobbitinn. Aðalsögupersónan var afar smár hobbiti, á stærð við barn, að nafni Bilbó Baggins. Sagan segir að Galdramaðurinn Gandálfur valdi Bilbó til að ferðast með sér, ásamt þrettán dvergum, til að endurheimta heimkynni og auð dverganna. Á ferðalagi sínu stöðvar hópurinn í álfaborginni Rivendell þar sem Gandálfur hitti yfirmann sinn, Saruman, og álfadrottninguna Galadriel. Eftir umtalsverðar vangaveltur um ævintýri föruneytisins spyr drottningin: Af hverju valdir þú hobbitann? Og Gandálfur svaraði á þessa leið:
„Ekki veit ég það. Saruman telur að það sé aðeins mikill máttur sem getur haldið hinu illa í skefjum, en það er ekki það sem ég hef komist að. Það eru hin litlu hversdagsverk venjulegs fólks sem heldur myrkrinu í skefjum. Lítil góðverk og kærleikur. Af hverju Bilbo Baggins? Kannski vegna þess að ég er hræddur og hann gefur mér hugrekki.“

Þessi orð Galdramannsins er hægt að hlusta á í stórmyndinni The Hobbit: An Unexpected Journey, sem byggð er á skáldsögu Tolkiens. Orðin ríma við það sem Kristur boðar í guðspjallinu. Við erum ljós og hlutverk okkar er að leyfa því að skína svo að það lýsi upp myrkrið fyrir aðra. Enginn er að biðja okkur um að bjarga heiminum. Við getum ekki frelsað einn eða neinn. Það er hlutverk Jesú Krists. En á góðum degi getum við framkvæmt lítil góðverk, ekki til að frelsa okkur sjálf eða svo að Guð hleypi okkur í ríkið sitt, heldur til þess að gera lífið ögn auðveldara. Vegna þess að það er nóg af myrkri í þessum heimi og getur hver einasti ljósgeisli skipt máli. Það sem okkur þykir lítið og ómerkilegt getur öðrum fundist stórkostlegt.

Eitt hrós gæti farið langleiðina með að bjarga degi einhvers sem er að berjast við sitt eigið myrkur. Við hrósum hvert öðru allt of sjaldan og erum frekar gjörn á að sjá hið neikvæða. Hvað varð um að þakka vinum okkar, fjölskyldu, maka og börnum fyrir allt sem þau gera fyrir okkur? Þetta skiptir máli. Það gerir mikið fyrir okkur þegar þakklæti, jákvæðni og kærleikur er ofarlega í huga okkar allra. Það getur lýst upp allt herbergið fyrir viðkomandi. Þið hafið án efa öll upplifað það að hafa fengið eitt lítið hrós, sem lýsti upp daginn fyrir ykkur. Þetta gerist of sjaldan að mínu mati. Það er svo sannarlega enginn skortur á þakklæti og almennri velvild þegar við missum einhvern úr lífi okkar.

Þegar einhver sem við elskum kveður þennan heim dveljum við yfirleitt við ljúfar minningar um viðkomandi sem veita okkur hlýju og birtu í hjarta. Hvar manneskjan fæddist, hvaða kyni eða kynhneigð hún tilheyrði, eða hvaða starfi hún sinnti skiptir minna máli. Það sem við munum eftir er hvaða áhrif viðkomandi hafði á líf okkar. Hvernig sú manneskja notaði sitt ljós til að lýsa upp myrkrið fyrir okkur. Þetta skiptir mestu máli og þó svo að minningarorð um viðkomandi innihaldi alls kyns upplýsingar um störf og ævi, að þá eru það ljúfu minningarnar sem gefa ræðunni líf. Á þessum degi minnumst við alls fólks sem látið hefur lífið, sama hvort það sé á þessu ári eða árum áður. Blessuð sé minning þeirra allra. Amen.