Samfélagið við Guðs borð

Ég hjó eftir einu athyglisverðu versi í pistli kvöldsins þar sem postulinn ritar: „Hver sem etur brauðið eða drekkur bikar Drottins á óverðugan hátt verður þess vegna sekur við líkama og blóð Drottins.“ Það getur verið krefjandi verkefni að skilja nákvæmlega hvað Páll á við í hvert sinn hann setur penna á pappír eða í hans tilviki blek á papýrus. Í raun er almennt erfitt að ritskýra bréf Páls og hafa þau verið túlkuð á ýmsa vegu í gegnum kirkjusöguna.

Náð og friður sé með ykkur öllum frá Drottni Jesú Kristi. Amen.

Hér erum við samankomin á Skírdagskvöld en eitt af táknum skírnarinnar er vatnið sem hreinsar. Á þessum degi minnumst við þess er Drottinn Jesús fór í hlutverk þjónsins og þvoði fætur lærisveina sinna. Um kvöldið naut frelsarinn sinnar síðustu kvöldmáltíðar með þeim tólf. Þessa samfélags minnumst við svo í altarissakramentinu er við neytum brauðsins og vínsins. Þess vegna er altarisgangan á tímum kölluð samfélag um Guðs borð.

Matur er mun meiri en einungis nauðsyn fyrir mörgum okkar. Hann er aðdráttarafl sem safnar fólki saman til að njóta máltíðarinnar sem og félagsskaparins sem í kringum hana er. Ég ætla að gefa mér það að ég tali fyrir flesta hérna inni þegar ég segi að ég elska að vera boðinn í mat, eða að fara út að borða. Í báðum tilvikum erum við að njóta matar í góðum félagsskap auk þess að þurfa ekki að ákveða hvað skuli vera í matinn, né ganga frá eftir hann. Algengasta og mögulega erfiðasta spurningin sem fólk spyr sig eftir að það flytur að heiman er: „Hvað á ég að hafa í matinn í kvöld?“ Mögulega búum við ein og þá viljum við hafa matinn látlausan og einfaldan. Það eru ekki margir sem elda á hverju kvöldi ef þeir búa einir. Matur er nefnilega tilefni til að koma saman og eiga gott samfélag með hvert öðru og ég vona að flest ykkar munið eiga dásamlega Páskamáltíð með ykkar nánasta fólki og minnist þá þess hve dýrmætt samfélag Drottins er.

Ég hjó eftir einu athyglisverðu versi í pistli kvöldsins þar sem postulinn ritar: „Hver sem etur brauðið eða drekkur bikar Drottins á óverðugan hátt verður þess vegna sekur við líkama og blóð Drottins.“ Það getur verið krefjandi verkefni að skilja nákvæmlega hvað Páll á við í hvert sinn hann setur penna á pappír eða í hans tilviki blek á papýrus. Í raun er almennt erfitt að ritskýra bréf Páls og hafa þau verið túlkuð á ýmsa vegu í gegnum kirkjusöguna. Þetta viðhorf sjáum við í Síðara almenna bréfi Péturs en þar er ritað í þriðja kafla: „Þetta er það sem hinn elskaði bróðir okkar, Páll, hefur ritað ykkur eftir þeirri speki sem honum er gefin. Það gerir hann líka í öllum bréfum sínum þegar hann talar um þetta. En í þeim er sumt þungskilið er fáfróðir og staðfestulausir menn rangtúlka, eins og aðrar ritningar, sjálfum sér til tortímingar.“ Jafnvel samtímamenn Páls eða eftirmenn voru ósammála um hvernig skilja ætti boðskap hans. Hvernig eigum við, sem erum uppi 2000 árum seinna, að skilja boðskapinn?

Ef versið um að þiggja altarissakramentið á óverðugan hátt er tekið úr samhengi sínu og túlkað eitt og sér má vera að Páll haldi því fram sem margar kirkjudeildir gera líka; að við verðum að játa syndir okkar og sættast við Guð áður en gengið er til altaris. Þess vegna höfum við t.d. almenna syndajátningu, upphafsbæn eða sálm sem inniheldur syndajátningu í messunni. Til stuðnings þessum skilningi á versinu segir Páll í næsta versi „hver maður prófi sjálfan sig áður en hann etur af brauðinu og drekkur af bikarnum.“

Það má vel vera að Páll hafi þetta í huga þegar hann ritar söfnuðinum í Korintu þessi orð til leiðbeiningar. Ef versið er hins vegar skoðað í samhengi kemur í ljós hvað Páll átti raunverulega við. Munum það að bréf Páls voru alltaf rituð til ákveðna söfnuða til hvatningar en líka til að leysa ákveðin vandamál innan þeirra. Strax í upphafi bréfsins eftir heilsuna ritar Páll: „En ég hvet ykkur, systkin, í nafni Drottins vors Jesú krists, að vera öll samhuga og ekki séu flokkadrættir á meðal ykkar. Verið heldur samlynd og einhuga.“ Korinta var mikil menningarborg og mátti finna þar margar trúarstefnur og lífsskoðanir af öllu tagi. Því er eðlilegt að í söfnuðinum hafi ekki allir verið sammála um allt.

Páll sendir því bréfið til að ráða úr öllum ágreiningi milli trúsystkina. Ágreiningurinn átti sér meðal annars stað í altarissakramentinu. Söfnuðurinn kom ekki saman heldur skiptist í hópa. Matnum var ekki deilt á meðal fólksins heldur borðuðu sumir sinn mat fyrir fram. Sumir voru hungraðir og aðrir ölvaðir. Söfnuðurinn hagaði sér ekki eins og ein eining, eins og einn líkami Krists. Ef allir limir líkamans vinna ekki saman að þá verður ekki eining. Þetta er það sem Páll á við þegar hann segir söfnuðinum að hann verði sekur við líkama og blóð Drottins. Máltíðin snýst ekki einungis um að skilja það að þetta er líkami og blóð Jesú Krists heldur minnir altarissakramentið okkur á að við erum lifandi limir á líkama Krists sem þurfum að elska og virða hvert annað.

Máltíðin, hvort sem hún er í kirkjunni eða heima hjá okkur, snýst um að koma saman og deila með hvert öðru bæði mat og því sem liggur okkur á hjarta. Samfélagið við Guðs borð, við eldhúsborðið, tekur utan um meðlimi þess og lætur þá vita að hér er gott að vera. Jesús segir: „Ég bið ekki einungis fyrir þessum heldur og fyrir þeim sem trúa á mig fyrir orð þeirra, að allir séu þeir eitt“. Því að þann mun aldrei hungra sem til hans kemur né þann þyrsta sem á hann trúir. Dýrð sé Guði, föður og syni og heilögum anda. Svo sem var í upphafi, er og verður um aldir alda. Amen.