Trú sem þorir að segja sannleikann um sársaukann beint við Guð

Þegar við þorum að tala um sorgina og hlusta hvert á annað, verðum við hvert öðru til huggunar. Við þurfum ekki réttu orðin. Það nægir að vera til staðar.

Það gerist hægt, næstum án þess að við tökum eftir því. Fyrst styttist dagurinn í annan endann, birtan fær á sig annan blæ og skuggarnir lengjast og myrkrið á kvöldin verður áþreifanlegra. Svo kemur kaldur og ferskur andvari í morgunloftið, lyngið roðnar í hlíðunum og laufið á trjánum gulnar. Sumarið er á förum og við finnum það, þótt við höfum ekki alltaf orð yfir það. Engin árstíð finnst mér hafa jafn skörp skil og skýrar andstæður eins haustið.

Haustinu fylgir margt gott. Allt fer í fastar skorður með sínum venjum og rútínu.Fallegur og notalegur tími, tími samveru og heimkomu.

En haustið kallar líka fram annað. Þegar myrkrið sækir á fara hugsanir okkar oft að leita inn á við. Þá skjóta upp kollinum spurningar og gamlar áhyggjur, og söknuður eða tregi, gera vart við sig. Hugsanir og tilfinningar sem birta sumarsins hafði breitt yfir en þær eru þarna enn. 

Líklega gefum við okkur alltof sjaldan tíma til að staldra við og hlusta á það sem býr innra með okkur, í ys og þys hversdagsins þar sem allt á að vera svo gaman. En meira fjör lagar ekki erfiðar tilfinningar og hugsanir. Það getur dreift huganum um stund, en þegar kvöldar og kyrrð færist yfir eru þær enn á sínum stað og bíða eftir að á þær sé hlustað. 

Samfélag sem afneitar sorginni

Ég heyrði nýlega félagsfræðing, konu, lýsa því að fræðasamfélagið hafi almennt gengið út frá þeirri kenningu að við lifum í samfélagi sem afneitar dauðanum. Hún vildi hins vegar meina að sú kenning hefði ekkert fræðilegt gildi. Brýnna viðfangsefni, sagði hún, er að við búum í samfélagi sem afneitar sorginni. Sorgin hefði smám saman verið falin og ætti sér hvergi stað, ekki einu sinni innan fjölskyldunnar. Verkefnið væri að stuðla að aukinni sorgarvitund. 

Sorgin er hluti af lífinu

Þetta eru stór orð og hér er verið að gefa í skyn að við sem samfélag gefum ekki erfiðum og sárum hugsunum og tilfinningum rými. Raunin er hins vegar sú að sorg er hluti af mannlegum veruleika og reynslu okkar allra. Nýlegar rannsóknir í Bretlandi sýna að meirihluti barna yngri en 10 ára hefur misst náin fjölskyldumeðlim, nær allir sem hafa náð 18 ára aldri í Bandaríkjunum hafa gengið í gegnum andlát vinar eða fjölskyldumeðlims og tæp 3% barna í Ástralíu hafa misst annað foreldri sitt. Þegar við lítum í eigin barm og til eigin reynslu, þá sjáum við að þessar tölur eiga líka við um okkur. Sorgin þekkir okkur öll.

Missir og sorg eru hluti af lífinu og enginn getur verið varinn fyrir áföllum. Fátt getur undirbúið okkur fyrir hana því aðstæður eru alltaf ólíkar og tengslin sömuleiðis. Hver missir er því ný sorg, jafnvel þótt við höfum reynt sorgina áður. Sorgin er líka margvísleg – hún getur verið mikil eða lítil, hávær eða hljóðlát, tengd dauðsfalli eða öðrum missi. 

Stuðningur sem skiptir mestu

Það sem skiptir þó mestu máli er hvaða stuðning við fáum, hvernig okkur er mætt í sorginni af okkar nánasta fólki og hvernig samfélag okkar mætir sorginni. Það hefur mest um það að segja hvernig okkur farnast og hversu vel við vinnum úr hugsunum okkar.

Stuðningur við syrgjendur er ekki aðeins áfallahjálp, viðtöl hjá sérfræðingum eða sérhæfður stuðningur. Aðeins lítill hluti þarf á slíkri stofnanalegri og sérhæfðri aðstoð að halda og það sem mestu skiptir er skilningur og stuðningur sem felst í því að fólk finni að það er ekki eitt í sorginni. Þau sem fá lítinn stuðning eru líklegri til að glíma við langvarandi sorgarröskun, þunglyndi, kvíða og félagslega einangrun. 

Rannsóknir sýna að fjölskylda og vinir eru það sem fólk í sorg nefnir oftast bæði sem mikilvægasta stuðninginn – og sem þann sem reynist minnst hjálplegur. Þau sem standa okkur næst vita oft ekki hvað þau eiga að segja eða gera. 

Ein algengasta fyrirspurnin sem ég fæ sem prestur er: „Vinur minn var að missa … hvað er best að gera?" Ég svara yfirleitt: “Gerðu það sem hjartað segir þér.” Fyrsta skrefið er að hafa samband og svo að fara í heimsókn. Í sorginni skiptir allt máli: hvert handtak, hvert tár, hvert faðmlag og hlý orð. 

“Ég gerði ekki neitt, ég bara var þarna”

Svarið er oft einfaldara en við höldum. Einu sinni talaði ég við foreldra sem höfðu misst barn sitt. Það var eins og gefur að skilja mikið áfall og þung sorg. Þau sögðu mér frá því að þá kom kona til þeirra og var hjá þeim í nokkrar vikur. Hún hugsaði um heimilið, eldaði mat, þvoði þvotta og kom eldri börnunum í skólann. Svo sat hún hjá þeim á kvöldin, oft var ekkert sagt, stundum horft á sjónvarpið og stundum grátið. Þau sögðu að konan hefði verið eins og engill sem þeim hefði verið sendur. Hún hefði bjargað þeim. Nokkru síðar hitti ég þessa góðu konu og sagði henni frá reynslu hjónanna. Konan sagði af hógværð: „Ég gerði ekki neitt, ég bara var þarna." 

Þetta er það sem er svo einstakt við sorgina. Það eru ekki til nein orð sem geta létt undir með þeim sem líður illa eða eiga um sárt að binda vegna sorgar. Þar skiptir mestu máli að vera, sýna hluttekningu, samkennd og finna til með, en ekki vorkenna. Stundum er sagt að það dugi ekki að standa fyrir utan holuna og horfa ofan í hana, heldur þurfi að fara ofan í holuna og sitja hjá manneskjunni.

Marta og Jesús

Um þetta fjallar guðspjall dagsins þegar Jesús mætir Mörtu eftir dauða Lasarusar bróður hennar. Marta hleypur til frelsarans og segir ásakandi við hann: “Ef þú hefðir verið hérna þá hefði bróðir minn ekki látist.”

Þessi viðbrögð eru svo sönn og sammannleg á öllum tímum – nú í dag sem fyrir nær 2000 árum. Fyrstu viðbrögð í áfalli eru oft ásakandi reiði og sektarkennd sem spyr: “Hvað ef?”

Fáir ganga jafn hart að Jesú í guðspjöllunum og Marta gerir hér. Það er einmitt ástæðan fyrir því að Marta hefur talað inn í aðstæður syrgjenda um aldir. Marta er ekki fyrirmynd trúar sem efast aldrei, heldur trúar sem þorir að segja sannleikann um sársaukann við Guð. Hún hefur hugrekki til að tjá sárindin, reiðina og söknuðinn frammi fyrir Guði.

Hvernig bregst Jesús við? Hann leiðréttir hana ekki, verður ekki reiður eða sár eða segir: „Þú átt ekki að tala svona“, heldur tekur hann á móti orðunum og sorginni sem þau bera. Hann hlustar, því oft er það eina sem hægt er að gera. Og skömmu síðar stendur hann við gröfina og grætur með þeim. Já Jesús grætur og syrgir vin sinn.   

Að tala um sorgina

Hér eins og svo oft áður birtist Guð sem er ekki hátt upp hafinn, heldur Guð sem þekkir manninn, gleði hans og sorgir. Guð sem stendur okkur við hlið, hlustar og skilur. Guð sem stendur ekki fyrir utan holuna, hann fer ofan í hana með okkur.

Ég finn þegar ég flyt þessa prédikun, og fann einnig þegar ég undirbjó hana, að það er ekki auðvelt að fjalla um þetta þema. Það verður mjög fljótt fullt af alvöru og þunga. Svo áttaði ég mig á því að sorgin er þung vegna þess að við erum ekki vön að tala um hana. Við þurfum að tala meira, á opinskáan og uppbyggilegan hátt um sorgina því aðeins þannig getum við byggt upp samfélag sem gefur sorginni rými.

Með samtali og umræðu stuðlum við að skilningi og þekkingu á sorg og sorgarviðbrögðum og að sorgin birtist með ólíkum hætti hjá fólki og engin ein rétt leið er til að syrgja. Sköpum menningu þar sem missir og sorg eru ekki tabú. Ávinningurinn er aukin færni til að hlusta á syrgjendur, þora að nálgast þau sem syrgja og vita hvernig er hægt að sýna stuðning án þess að reyna að laga sorgina. 

Hér er mikið í húfi, ekki aðeins fyrir samfélagið og þau sem syrgja, heldur fyrir okkur sjálf, því sorgin gengur ekki fram hjá neinum. En við þurfum ekki að bera hana ein. Þegar við þorum að tala um sorgina og hlusta hvert á annað, verðum við hvert öðru til huggunar. Við þurfum ekki réttu orðin. Það nægir að vera til staðar, hlusta og sitja með, eins og Jesús sem hlustaði á Mörtu.

Og hann segir við okkur: „Ég er upprisan og lífið. Sá sem trúir á mig mun lifa þótt hann deyi." 

Í Jesú nafni amen.