Kirkjan á að boða en ekki að dæma.
Náð og friður sé með ykkur öllum frá Drottni Jesú Kristi. Amen.
“Sá sem hefur boðorð mín og heldur þau er sá sem elskar mig. En þann sem elskar mig mun faðir minn elska og ég mun elska hann og birta honum hver ég er.” Þessi kærleiksríku orð Jesú einkenna kirkjuna hans sem var sett á stofn á Hvítasunnudegi. Það hefur verið hlutverk kirkjunnar frá þessum degi að boða fagnaðarerindi Krists. Við sem fylgjum Kristi sjáum kirkjuna í þessu ljósi, kirkju sem lýsir upp myrkrið fyrir öll sem til hennar leita. Því miður sér ekki allt fólk kirkjuna á þennan veg og kemur ekki til hennar. Ástæður þess geta verið margar, hvort sem það er slæm reynsla af kristinni kirkju eða áhugaleysi á henni. Mörg sem ég hef talað við hafa rætt við mig um dómhörkuna frá trúarbrögðum og háa hestinn sem kristið fólk situr oft á. Þó svo að ég og mörg okkar upplifum kristna kirkju sem umburðarlynda og kærleiksríka þýðir það ekki að hún hafi ekki brugðist fólki í gegnum tíðina.
Kristnir í ýmsum kirkjudeildum, hérlendis eða að utan, á samfélagsmiðlum eða kristnir áhrifavaldar boða boðskap sem er þykir fráhrindandi. Orðræða sumra þeirra einkennist á tímum af hroka og dómhörku. Vegna þessa gæti fólk sem byggir álit sitt á kirkjunni á þessum fráhrindandi boðskap, misskilið orð Jesú og jafnvel snúið þeim á hvolf: „Hver eru boðorð Jesú? Hvað ef ég næ ekki að halda þau öll? Jesús mun þá ekki elska mig og ekki heldur faðirinn á himnum.“ Finnst ykkur ekki hræðilegt að hugsa svona? En fólk gerir það vegna slæmrar orðræðu sumra kristinna manna sem eru sífellt að reyna að frelsa í stað þess að boða orðið.
Ef við lesum aðeins lengra í Guðspjallinu kemur fram hinn skilyrðislausi kærleikur sem Guð opinberar í Jesú Kristi. Hann segir: „Sá sem elskar mig varðveitir mitt orð og faðir minn mun elska hann. Sá sem elskar mig ekki varðveitir ekki mín orð.“ Heyrið þið muninn á setningunum tveimur? Munurinn felst í því sem Jesús segir ekki. Fyrst segir hann að faðirinn mun elska þann sem elskar Jesú og varðveitir hans orð. Það sem Jesús segir ekki er: „faðirinn mun ekki elska hann“, þann sem varðveitir ekki hans orð. Jesús er hér að opinbera að faðirinn á himnum elskar allar manneskjur skilyrðislaust hvort sem þær varðveita orð Jesú eða ekki. Finnst ykkur þetta ekki ótrúlegt? Þessa náð gefur faðirinn til okkar allra sama hver við erum. Þetta er það sem einkennir boðskap Krists sem hann treysti lærisveinum sínum fyrir á Uppstigningardegi er hann steig upp til himna.
Hvítasunnan minnir okkur á hvert hlutverk kirkjunnar er, að boða fagnaðarerindi Krists. Stundum eigum við til með að gleyma því hlutverki og stígum inn í hlutverk dómarans. Það er ekki okkar staður enda segir Kristur: „Dæmið ekki svo að þið verðið ekki dæmd.“ Jesús skildi eftir heilagan anda af ástæðu, til þess að leiða hvert og eitt okkar til hans. Það er hlutverk Guðs föður að skapa, hlutverk Krists að endurleysa og hlutverk heilags anda að vinna í okkur.
Þegar heilagur andi kom yfir lærisveinanna birtust þeim eldtungur og gátu þeir talað öllum tungumálum. Þetta gerði þeim kleift að sinna hlutverki kirkjunnar, að boða fagnaðarerindið um alla jörðina. Það er merkilegt að skoða hvernig þessi helgisaga kallast á við söguna af Babelsturninum í Fyrstu Mósebók. Til að minna okkur á atburðina sem áttu sér stað við gerð turnsins í Babel þá segir sagan að allir jarðarbúar töluðu sama tungumál. Þeir vildu byggja svo háan turn, að hann næði til himins þar sem Drottinn var. Guði leist ekki á blikuna, steig niður og ruglaði tungumál þeirra svo að enginn skildi hvern annan. Guð, sem tvístraði ættkvíslum Ísraels um alla jörðina, gerði kirkjunni kleift að fara til þeirra allra og sameina þær undir einu tungumáli, það er tungumál kærleikans.
Lærisveinarnir voru sendir til að boða fagnaðarerindið sem sameinar allt fólk í Kristi Jesú. Kirkjan boðar og heilagur andi leiðir allt fólk til Krists á einn eða annan hátt. Því treysti ég því að jafnvel þó að Jesús sé stiginn upp til himna að þá getum við alltaf séð hann. Hann segir: „Á þeim degi munuð þið skilja að ég er í föður mínum og þið í mér og ég í ykkur.“ Kristur er hér á meðal okkar allra og innra með okkur öllum.
Við elskum hann með því að halda boðorð hans en hver eru boðorðin sem Jesús talar um? Er Kristur að tala um boðorðin tíu? Móselögin? Fjallræðuna? Ef við skoðum þrettánda kafla í Jóhannesarguðspjalli sjáum við boðorðið sem Jesús talar um: „Nýtt boðorð gef ég ykkur, að þið elskið hvert annað. Eins og ég hef elskað ykkur skuluð þið einnig elska hvert annað. Á því munu allir þekkja að þið eruð mínir lærisveinar ef þið berið elsku til hvers annars.“ Þetta er ekki kærleikshjal heldur krafa sem Kristur gerir. Við eigum að elska eins og hann elskar og þannig höldum við boðorð hans. Við erum ekki fullkomin eins og Kristur og vegna þess brjótum við þetta boðorð á hverjum degi. Því að við getum stundum ekki elskað, getum ekki náð og getum ekki fyrirgefið. Þess vegna höfum við heilagan anda, til að styrkja, hjálpa og leiða okkur til Krists. Faðirinn á himnum elskar okkur alltaf sama hvar á vegferð okkar við erum. Hann bíður eftir okkur og þegar við snúum aftur er fögnuðurinn mikill á himnum. Þetta er Guð kristinnar kirkju. Hér er ekki dómur eða refsing. Hér er fyrirgefning, miskunn og mildi. Hér er einlæg trú á einlægan Guð sem opinberaði sig í syninum Jesú Kristi og dvelur með okkur í heilögum anda. Dýrð sé Guði föður, syni og heilögum anda, svo sem var í upphafi er og verður um aldir alda. Amen.