Þannig þróast þetta samtal Mörtu og Jesú yfir frá þessu litla ef – þaðan sem efasemdirnar spretta, já þar sem við festum okkur í kviksyndi þeirra hugsana, hvað ef eitthvað hefði gerst en ekki annað – og yfir í hið máttuga já. Því játning Mörtu í lok samtalsins er ein sú sterkasta í Nýja testamentinu: „Ég trúi að þú sért Kristur, Guðs sonur.“ Þetta er sambærilegt við játningu Péturs í hinum guðspjöllunum. Marta er hér ekki bara hin önnum kafna kona. Hún er guðfræðingur og játandi.

Lasarus er einn þessara nafntoguðu sögupersóna í Biblíunni. Hann er stundum nefndur í samtölum fólks og þá jafnan af sama tilefninu: „Æ ég er nú óttalegur Lasarus,“ segir maður ef heilsufarið hefur verið dapurt. Nafnið Lasarus hefur meira að segja orðið að tákni veikinda og sjúkraskýla í evrópskum tungumálum.


Ef Guð er góður...?

Í guðspjallinu hefur Lasarus einmitt verið veikur og svo deyr hann. Hann er því á sinn hátt fulltrúi þeirra sem eiga við slíkt mótlæti að stríða sem heilsubrestur er og já, þegar dauðinn knýr dyra.

Sagan greinir frá samtali Jesú við þessar systur sem minnugir messugestir tengja ef til vill við síðustu messu. Þar var Jesús í heimsókn hjá þeim systrum Mörtu og Maríu og gaf lítið fyrir umkvartanir þeirra fyrrnefndu að systir hennar gerði ekki handtak á heimilinu með gesturinn var á staðnum.

En nú er það Marta sem á orðið, buguð af sorg yfir andláti bróður síns, leitar hugur hennar á sömu slóðir og oft er þegar djúpstætt angur sækir á sálina og vonbrigðin heltaka hugann. Þá er stutt í það að við förum að velta því fyrir okkur hvað hefði gerst, ef, aðstæður hefðu verið aðrar. Já, bara ef... hver kannast ekki við slíkar vangaveltur í aðstæðum sem þessum.

Og kallar fram sístæða spurningu sem hefst einmitt á sama smáorðinu. Ef Guð er góður, hvers vegna þá allur þessi harmur og öll þessi sorg? Slík heilabrot eru mannleg og má segja að þessi nagandi spurning sé í bakgrunni þessarar sögu.

Það er þessi ráðgáta sem skýtur svo oft upp kollinum þegar við hugleiðum almættið í gæsku sinni og almætti. Trúað fólk jafnt sem vantrúað hefur glímt við þessa spurningu: Ef Guð er góður og almáttugur, hvers vegna er heimurinn þá svona?

Viðbrögð Mörtu eru á sinn hátt tilbrigði við þá spurningu: „Drottinn, ef þú hefðir verið hér væri bróðir minn ekki dáinn.“


Hinn huldi Guð

Í ýmsum textum Gamla testamentisins er þessari reynslu lýst með myndmáli um að Guð feli ásjónu sína. Ekki er þar endilega komin skýring á þjáningunni heldur orð yfir reynslu mannsins, sem spyr í örvæntingu sinni: Guð, hvar ertu?

Já, hvers vegna öll þessi sorg og þjáning? Ef til vill er fulllangt seilst að kalla það skýringu, við getum mögulega talað um túlkun í því sambandi. Þeir litu svo á að í slíkum tilvikum sneri Guð baki við einstaklingi eða samfélagi. Í því sambandi er talað um hinn hulda Guð, þann sem felur ásjónu sína og þá hellist myrkrið yfir, nú eða fólk hverfur ofan í djúpið svo vitnað sé í Davíðssálminn sem hér var lesinn.

„Guð minn, hví hefur þú yfirgefið mig“ hrópaði Jesús á krossinum og vitnar þar í einn af sorgarsálmum Davíðs. Síðar í sálminum ávarpar skáldið Guð og segir: „Ver eigi fjarri mér því að neyðin er nærri og enginn hjálpar.“ Og í Getsemane bað Jesús til Guðs og fékk engin svör.


Auglit Guðs

Já, hvers vegna ertu mér fjarri? „Drottinn, heyr í raust mína, lát eyru þín hlusta á grátbeiðni mína“ biður hið óþekkta skáld í sálminum sem hér var lesinn.

Þetta er hugsunin, af ástæðum sem okkur eru huldar, snýr Guð við okkur bakinu. Alla heimsins þraut getum við túlkað í því ljósi. Og bænir okkar eru af sama meiði sprottnar og orð sálmaskáldsins: Ekki víkja frá mér, vertu mér nærri.

Við köllumst á við þetta stef í nánast hverri kirkjulegri athöfn. Henni lýkur með bæn sem talin er vera sú elsta í Biblíunni. Það er hin Drottinlega blessun og við endum einmitt þessa athöfn á henni einnig. Niðurlag hennar er á þessa leið: „Drottinn láti sína ásjóna lýsa yfir þig“ og litlu síðar: „upplyfti sínu augliti yfir þig og gefi þér frið.“

Þetta er svo kölluð Bæn Arons, ein elsta sinnar tegundar sem við eigum í ritningunni. Hlutar hennar hafa fundist á silfurþynnum frá svæðinu Ketef Hinnom skammt frá Jerúsalem, frá því um 600 f.Kr., sem mun vera elsti þekkti varðveitti texti sem einnig er í Biblíunni.

Og þessi bæn hefur alveg sérstakan sess innan kirkjunnar. Hún er flutt yfir barni sem borið er að skírnarlauginni. Messugestir heyra hana, fermingarbörn, brúðhjón – já og þegar árin öll eru að baki er hún flutt yfir kistu hins látna.

Að baki þessum orðum býr þessi sama hugsun, að Guð snúi sér ekki frá okkur, heldur þvert á móti sýni okkur þá alúð sem við sjálf getum miðlað hvert til annars. Ásjóna Drottins lýsir yfir okkur og að hann birtir okkur auglit sitt – þetta kallast á við þá þætti sem er hér eru nefndir. Sú önn sem við sýnum hvert öðru getur orðið endurómur þeirrar umhyggju sem Guð sýnir okkur.

Ásjóna Guðs er aftur á móti eins og hlýlegt augnaráð frá ástvini, eða umhyggja móður sem heldur á kornabarni sínu – sú algera nánd sem listamenn á öllum sviðum hafa dregið fram og endurspeglað í ýmsu samhengi.


Ef verður, já

Þannig þróast þetta samtal Mörtu og Jesú yfir frá þessu litla ef – þaðan sem efasemdirnar spretta, já þar sem við festum okkur í kviksyndi þeirra hugsana, hvað ef eitthvað hefði gerst en ekki annað – og yfir í hið máttuga já. Því játning Mörtu í lok samtalsins er ein sú sterkasta í Nýja testamentinu: „Ég trúi að þú sért Kristur, Guðs sonur.“ Þetta er sambærilegt við játningu Péturs í hinum guðspjöllunum. Marta er hér ekki bara hin önnum kafna kona. Hún er guðfræðingur og játandi.

„Ég er upprisan, segir Kristur.“ Þar liggur guðfræði guðspjallamannsins Jóhannesar. Von kristinnar trúar er ekki fyrst og fremst kenning um hvað gerist eftir dauðann. Vonin er persóna. Kristinn maður treystir ekki fyrst og fremst á hugmyndina um eilíft líf. Hann treystir Kristi. Jesús segir: „Sá sem trúir á mig mun lifa þótt hann deyi.“

Það er raunsæ setning. Jesús afneitar ekki dauðanum. Hann segir ekki: „Sá sem trúir, deyr ekki.“ Hann segir: þótt hann deyi. Kristin trú boðar því ekki að við losnum undan sorg, veikindum og dauða. Boðskapurinn er enn róttækari: Dauðinn fær ekki síðasta orðið.

Og það verður enn skýrara í næstu setningu: „hver sem lifir og trúir á mig mun aldrei að eilífu deyja.“

Lasarus er því í bakgrunni frásagnar sem hefst á hinu sára ef: „Drottinn, ef þú hefðir verið hér.“ Jesús svarar Mörtu ekki með skýringu á því hvers vegna Lasarus dó. Hann leysir ekki ráðgátu þjáningarinnar. Hann gefur henni sjálfan sig: „Ég er upprisan og lífið.“

Og kannski er það einmitt svar trúarinnar. Ekki að við fáum svör við öllum okkar efum. Ekki að sorgin hverfi eða dauðinn verði óraunverulegur. Heldur að mitt í því öllu snýr Guð ekki frá okkur ásjónu sinni. Hann er nærri.

Þess vegna getum við, jafnvel með spurningar okkar og sorg, tekið undir með Mörtu: Já, Drottinn, ég trúi. Og þess vegna biðjum við: Drottinn láti sína ásjónu lýsa yfir okkur og gefi okkur frið.