Vatnið sem eyðir og hreinsar
Náð og friður sé með ykkur öllum frá Drottni Jesú Kristi.
Í dag er Sjómannadagurinn sem fyrst var haldinn hátíðlegur þann 6. júní 1938. Alþýðublaðið frá þessum tíma greinir frá glæsilegum hátíðisdegi sem hertók alla borgina og alla íbúa hennar. Flest eða öll skip sem lágu í höfn voru fánum skreytt og söfnuðust sjómenn saman um hádegi við Stýrimannaskólann. Þeim eru flestum lýst sem djarflegum og hraustlegum mönnum en þó voru nokkrir hrumir sjómenn og bognir, líklega eftir fjöldamarga langa túra út á sjó. Á þessum degi minnumst við þeirra sem hættu sér út á hafið og um leið fórnuðu miklu til þess.
Hafið er nefnilega ekkert til að gera gys að enda þekur það um 71% af yfirborði jarðar. Hafið ber að virða vegna þess að ef við förum ekki varlega geta afleiðingarnar orðið alvarlegar. Sjálfur var ég prestur í Vík í Mýrdal í tvö ár áður en ég hóf að starfa hér í Breiðholti og heyrði ég oft sögur af ferðafólki sem slasaði sig eða jafnvel týndi lífi sínu í Reynisfjöru. Þar eru viðvaranir margar á mörgum tungumálum en einhverja hluta vegna dregst fólk að sjónum. Þó Reynisfjara sé ein fallegasta náttúruperla Suðurlands sem horfir út á Atlantshafið, sýnir hún trekk í trekk hve grimm og miskunnarlaus náttúran getur verið ef við gætum okkar ekki.
Biblían kennir okkur einnig um eyðingarmátt hafsins sem opinberast í Guði. Rauða hafið sem Móse klauf með staf Drottins varð Gyðingum frelsun en Egyptum að bana er það gleypti þá alla. Lexía dagsins greinir frá skipverjum er sáu verk Drottins á hafinu. Sálmurinn segir að Guð bauð upp á hvílík stormviðri og hóf upp öldur hafsins. Er þeir hrópuðu á hjálp lægði Drottinn öldurnar og breytti storminum í blíðan blæ. Svo má ekki gleyma hinni dularfullu veru í Jobsbók er nefnist levjatan eða krókódílinn. Levjatan er dreki eða sjóskrímsli sem fram kemur í ýmsum mýtum en merkir einnig þá ógn sem stafar af dauða og tortímingu. Guð talar um krókódílinn í fertugasta kafla Jobsbókar og lýsir honum af nákvæmni, bæði útliti og krafti. Drottinn notar skrímslið sem myndlíkingu fyrir sjálfan sig: „Hver getur veitt krókódílinn á öngul, þrýst niður tungu hans með færi… enginn dirfist að egna hann. Hver getur staðið fyrir augliti hans?“ Enginn maður getur gert levjatan að þjóni sínum, enginn maður getur staðið frammi fyrir Guði og enginn maður getur tamið hafið. Svo mikill er máttur þess sem er frá Guði kominn.
Sagan af örkinni hans Nóa greinir frá því er Guð lét flóðbylgju flæða yfir alla jörðina í þeim tilgangi að eyða öllu lífi. Þið getið sagt og hugsað það sem þið viljið um Guð í þessu samhengi. Vissulega er grimmd í því að eyða öllu lífi og er erfitt fyrir guðfræðinga að setja fram trúvörn fyrir gjörðir Drottins en skoðum textann. Fyrsta Mósebók greinir frá: „Drottinn sá nú að illska mannanna var mikil orðin á jörðinni og að allar hneigðir þeirra og langanir snerust ætíð til ills.“ Drottinn eyðir mannkyninu vegna illsku þess en Ritningin segir: „Þá iðraðist hann þess að hafa skapað mennina á jörðinni og hann hryggðist í hjarta sínu og sagði: ‚Ég vil afmá mennina, sem ég skapaði, af jörðinni, bæði menn og kvikfé, skriðdýr og fugla himins. Því að mig iðrar þess að hafa gert þá.‘“
Sögunnar í Gamla testamentinu sýna mögulega ekki alltaf blíðustu hliðarnar af Guði en að mínu mati sýnir það Guð sem við getum tengt við. Við sjáum, ef svo má að orði komast, mannlega mynd af Guði í sögunni. Guð sem er skapstór og verður reiður. Guð sem iðrast og grætur. Guð sem sér eftir og jafnvel viðurkennir eigin mistök. Það er eðlilegt að þykja Drottinn grimmur í ýmsum af þessum sögum en í mörgum þeirra framkvæmir hann ekki dóm sinn í gleði heldur í sorg. Guð er vissulega dómari en hann er líka foreldri sem grætur börn sín og náðari sem sá gott í Nóa og fjölskyldu hans. Í þeim var von og lofaði Drottinn að hann myndi aftur eyða mannkyninu aftur vegna illsku þess.
En í hafinu felst meira en aðeins
eyðingarmáttur. Vatnið er, eins og við vitum vel, undirstaða alls lífs. Eins og
vatnið getur tekið líf þá getur það einnig gefið það. Guð eyðir með vatni,
frelsar með vatni, og hreinsar með vatni. Drottinn gaf okkur lífsins vatn í
syninum Jesú Kristi svo að hver sem á hann trúir muni aldrei aftur þyrsta. Guð
Sonurinn fórnaði lífi sínu á krossi svo að við þyrftum aldrei aftur að svara
fyrir syndir okkar, fyrir þá illsku sem er í heiminum. Vegna blóðs hans mun
dómur Guðs fram hjá okkur fara. Þegar flóð og stormar dynja yfir okkur í lífinu,
þegar allt virðist vonlaust og levjatan gerir tilraun til að gleypa okkur,
getum við treyst á hinn sanna Drottinn okkar og frelsara til að standa með
okkur. Jesús mun hasta á vindinn og vatnið svo að við getum siglt með honum
lygnan sjó í ríkið sem hann lofaði okkur.
Dýrð sé Guði föður, syni og heilögum anda, svo sem var í upphafi, er, og verður
um aldir alda. Amen.