Fjórskiptur taktur náttúrunnar

Og þá er ég kominn aftur að þessum fjórskipta takti náttúrunnar sem við Vivaldi höfum svo mikið dálæti á og eiginkona mín hefur þurft að hlusta á mig dásama hverja fyrir sig. Árstíðirnar minna okkur á að lífið hefur sína hrynjandi. Tími er til að sá og tími er til að uppskera. Tími er til að vinna og til að hvílast. Og stundum er líka tími til að bíða, án þess að sjá nokkuð gerast.

Ég er mikill unnandi árstíða.


Alltaf sama jákvæðnin

Í myrkri skammdegis verður mér það stundum á orði hversu mikil forréttindi það eru að geta arkað í gegnum fönn og slabb á góðum skóm í hlýjum fatnaði og eiga svo von á notalegri stundu þegar komið er heim. Að liðnum vetri nefni ég það gjarnan hversu mikil gæfa það sé að komið sé vor, vindurinn hlýrri, dagbjart þegar risið er úr rekkju og trén farin að bruma. Svo er stutt í sumargleðina, allir litirnir, maður minn, bæði fyrir augu, eyru, ilm og bragð! Og já, að því loknu er ekki ósennilegt að ég bendi á angurværa töfra haustsins, djúpa liti gróðursins og afrakstur moldarinnar.

Konan mín á það til að ranghvolfa augunum þegar ég byrja að hampa einhverju þessara fjögurra skeiða sem árið skiptist í. „Þú ert alveg jafn jákvæður í garð annarra árstíða,“ bendir hún mér góðfúslega á þegar ég upphef lofræður af þessum toga. En þetta er hvorki sjálfsblekking né pollýönnuhjal, heldur sett fram í allri einlægni!


Já, ég ann árstíðunum og þegar ég skrifa rifjast það upp fyrir mér að fyrsti geisladiskurinn sem ég eignaðist var einmitt með óði tónskáldsins Antonio Vivaldi til Árstíðanna fjögurra. Barokktónskáldið var bersýnilega jafn hrifið og ég af þessum fjórskipta takti náttúrunnar!  

Þótt textar dagsins séu frá þeim slóðum þar sem skil árstíðanna eru minni en hér í norðrinu, vísa þeir til þeirrar hrynjandi sem lífheimurinn fylgir. Þetta er boðskapur sóttur í reynsluheim akuryrkjufólks sem þekkir hvað þarf til þess að uppskeran verði góð.

Hvað býr að baki farsæld? 


Stephen Covey, er höfundur metsölubókar um árangur og farsæld. Áður en hann setti fram kenningar sínar, hafði hann rannsakað skrif um þessi efni frá um 200 ára tímabili, einkum ævisögur. Hann taldi sig greina athyglisverð þáttaskil í því hvernig fólk skilgreindi árangur.

Í eldri ritunum var sjónum beint að þeim mannkostum sem fólk hafði ræktað með sér yfir langan tíma. Þolinmæði, auðmýkt, heilindi, hugrekki og réttlæti voru taldar forsendur farsældar. Síðar tók meira að bera á aðferðum og tækni sem áttu að skila skjótum árangri. Þá skipti jafnvel meira máli að líta út fyrir að vera farsæll en að búa yfir raunverulegum mannkostum.

Covey taldi að þarna birtist meðal annars sá munur sem væri á samfélagi sem þekkti lögmál akuryrkjunnar og því sem hafði fjarlægst þann veruleika. Bóndinn veit að ekki er hægt að stytta sér leið til uppskerunnar. Frjór jarðvegur, sáning og aðhlynning eru forsendur þess að eitthvað geti vaxið og dafnað.


Einn sáir, annar vökvar

Og þessa hugsun má einmitt finna hjá Páli postula í pistli dagsins. Hann skrifar til kristna safnaðarins í Korintu, þar sem sundurlyndi hafði gert vart við sig. Fólk skipaði sér í fylkingar og hreykti sér af þeim leiðtogum sem það taldi standa öðrum framar.

Páll bendir á að enginn einn geti eignað sér allan heiðurinn af því sem áunnist hefur. Einn gróðursetur, annar vökvar. Og svo bætir hann við þessum mikilvægu orðum: „En Guð gaf vöxtinn.“

Já, við getum sáð, vökvað og hlúð að jarðveginum. En við getum ekki skipað fræinu að spíra, ekki stjórnað vextinum, ekki einu sinni tryggt að uppskera verði. Sú vitund ætti að kalla fram auðmýkt í huga okkar. Því við erum ekki einráð um árangurinn og ættum því ekki að eigna okkur allan heiðurinn ef vel gengur. En þessi orð færa okkur líka frelsi og von. Við berum ekki ein ábyrgð á öllum árangri lífs okkar. 

Þetta er líka boðskapur Jesú í guðspjallinu: „Sá sem upp sker tekur þegar laun og safnar ávexti til eilífs lífs. Þá getur sá sem sáir samfagnað þeim sem upp sker. Hér sannast orðtakið: Einn sáir og annar upp sker.“ Hér er talað um starf þeirra sem miðla fagnaðarerindinu. Enginn vinnur verkið einn og allir fá að gleðjast yfir afrakstrinum.


Óviss uppskera

En orðin eiga ekki síður við um mannlífið sjálft.

Við uppskerum ekki í samræmi við það sem við höfum sáð. Og sannarlega er tíminn óviss hvort, hvernig og þá hvenær afraksturinn lítur dagsins ljós. Foreldrar sá fræjum sem kunna að bera ávöxt löngu síðar. Kennarar miðla gildum sem nemendur tileinka sér kannski ekki fyrr en löngu eftir að skólagöngu lýkur. Fólk auðsýnir kærleika án þess að vita hvaða áhrif það hefur.

Og svo eru þau sem aldrei fá að sjá ávöxt erfiðis síns.

Þannig er líka með kirkjuna. Við byggjum á verkum þeirra sem á undan okkur komu og það sem við gerum í dag getur orðið öðrum til blessunar löngu eftir okkar daga.

Orðin líka átt við um persónulegan vöxt hvers og eins okkar. Þau minna okkur á að raunverulegur þroski verður ekki í einni andrá.

Rétt eins og við getum ekki sest við hljómborð á píanói eða þessu orgeli og vænst þess að leika af fingrum fram án þess að hafa æft okkur í langan tíma, getum við ekki reiknað með að líf okkar verði ríkt að innihaldi og merkingu án þess að hafa hlúð að rótum tilveru okkar.

Við ættum því að hafa varann á okkur þegar athygli okkar beinist um of að því fólki sem mest er hampað á okkar dögum. Þar er ekki endilega allt sem sýnist. Kannski ættum við fremur að spyrja hvernig við getum sjálf ræktað með okkur þá mannkosti sem gera okkur kleift að hafa góð áhrif á umhverfi okkar.

En jafnframt megum við minnast þess að lífið lýtur ekki alltaf okkar áætlunum. Stundum uppskerum við annað en það sem við sáðum. Stundum verður ekkert úr því sem við lögðum svo mikið í. Það merkir ekki að viðleitni okkar hafi verið til einskis.


Fjórskiptur takturinn

Og þá er ég kominn aftur að þessum fjórskipta takti náttúrunnar sem við Vivaldi höfum svo mikið dálæti á og eiginkona mín hefur þurft að hlusta á mig dásama hverja fyrir sig. Árstíðirnar minna okkur á að lífið hefur sína hrynjandi. Tími er til að sá og tími er til að uppskera. Tími er til að vinna og til að hvílast. Og stundum er líka tími til að bíða, án þess að sjá nokkuð gerast.

Mögulega er það einmitt ein mikilvægasta lexían sem náttúran getur kennt okkur á tímum þegar við viljum helst fá allt strax. Kærleikur sem við sýnum í dag getur borið ávöxt löngu síðar. Orð sem við látum falla geta orðið öðrum til styrktar þegar við erum sjálf búin að gleyma þeim.

Því skulum við halda áfram að sá góðum fræjum, sýna kærleika, rækta réttlætið og hlúa hvert að öðru. Við sjáum ekki alltaf vöxtinn og vitum ekki alltaf hvað verður úr því sem við höfum sáð. En við megum treysta því að það sem unnið er í kærleika sé ekki unnið til einskis. Okkar er að sá og hlúa að. Guðs er að gefa vöxtinn.