Sorgin á sér uppsprettu í því sem manni þykir vænt um
Biðjum:
Dagur er, dýrka ber
Drottin Guð minn,
nótt er liðin, lof sé Guði,
ljós skín,
gleður enn marga menn
myrkraflóttinn.
Líf og sál, líka mál
lofi Drottin. (sl. 408:1). Amen.
Náð sé með yður og friður frá Guði föður vorum og Drottni Jesú Kristi. Amen.
Tengslin
Það er blessun að fá að lifa, fá að starfa og láta gott af sér leiða til góðs fyrir aðra.
En umfram allt er það blessun að fá að eiga fjölskyldu og tilheyra félagslegu samhengi. Einmitt þar verður lífið dýrmætt, í hinum farsælu og gefandi tengslum við ástvini og samferðarfólk.
Stundum er sagt að tengslin séu þrennskonar sem gefa lífinu dýpt og merkingu. Það eru tengslin okkar við okkur sjálf, tengslin við náunga okkar, ástvini og fjölskyldu, og svo tengslin við okkar æðri mátt, við Guð.
Myndin
Á grundvelli slíkra tengsla verður heimsmynd okkar til, myndin okkar af lífinu.
Hvernig lítur lífið út hjá mér? Sem dæmi er staðan þannig í lífi mínu í dag að ég er 53 ára, á dásamlega fjölskyldu, eiginkonu, þrjú börn, tengdadóttur og barnabarn, móður og systkini, tengdafjölskyldu og vini, og svo einnig hund. Svo er heilsan bara ágæt, margt skemmtilegt gjarnan á dagskránni, tónleikar, útivist, íþróttir, hreyfing, kajakróður, ferðalög, starfið og þjónustan á vettvangi kirkjunnar, dásamlegt samstarfsfólk og vinir.
Þetta er einföld lýsing á myndinni minni af lífinu.
Svo gerist eitthvað sem verður til þess að myndin mín breytist.
Sem dæmi þá var pabbi þarna inn á myndinni fyrir áratug, en nú eru það minningar um góðan föður sem hafa tekið það sæti og rými. Myndin þar með breyttist, ég varð að raða upp myndina á ný, þegar pabbi minn lést, fyrir tíu árum síðan.
Lífsins gangur
Sorg og missir er lífsins gangur. Stundum undrast maður yfir því hve mikið er lagt á suma. Hvers vegna þurfa sumir að glíma við svona mikið, að því er virðist, og aðrir minna?
Ég hef ekki svörin við þeim spurningum. Ég veit ekki af hverju það er þannig. Þannig virðist það samt vera, dæmin þekkjum við öll.
Þegar við missum einhvern nákomin breytist myndin okkar af lífinu. Verkefnið sem þá tekur við er að teikna hina nýju mynd. Sú vinna sem þá fer í gang köllum við sorgarferli.
Sorgarferlið getur tekið langan tíma. Stundum er sagt að þegar eitt ár er liðið frá því að missirinn átti sér stað, þá höfum við gengið í gegnum öll tímamótin sem árið ber í skauti sér. Fyrstu jólin eftir ástvinamissinn, fyrsta sumarfríið, afmæli allra í fjölskyldunni, og þannig mætti áfram telja. Í kjölfar fyrsta ársins göngum við síðan inn í annað árið með reynsluna af því hvernig myndin okkar af lífinu er að breytast.
Á vegi sorgarinnar mæta okkar margar tilfinningar. Tilfinningarnar eru hvorki réttar né rangar, þær eru bara þarna, mannlegar, sumar erfiðar.
Mikilvægt er að finna þeim farveg. Besti farvegurinn fyrir tilfinningarnar er í gegnum málbeinið, að tjá líðan sína í eyru þeirra sem láta sig varða um okkur og vilja aðstoða okkur. Og svo er það okkar að vera til staðar hvert fyrir annað, með eyra sem heyrir og hjarta sem slær.
Tilfinningarnar
Tilfinningarnar í sorgarferlinu eru mannlegar. Ég ætla hér að tæpa á nokkrum þeirra.
Depurðin er tilfinning sem snýr inn á við. Þegar við erum döpur viljum við vera í friði, fá næði. Allt er það heilbrigt og eðlilegt. En svarið við depurðinni er að taka skrefið út, hafa samband við vini og fjölskyldu, rækta tengslin, sýna hugrekki og þrautseigju, þ.e. passa okkur á að depurðin valdi okkur ekki einnig einangrun, það að við einangrum okkur ekki, því þá getur einmanaleikinn og jafnvel andlegar áskoranir, kvíði og þunglyndi, verið handan hornsins. Gangvart vinum okkar og fjölskyldu sem glíma við missi og depurð þá er mikilvægt að við sýnum frumkvæði, höfum samband, komum í heimsókn. Hjálpum vinum okkar að stíga út úr depurðinni og einmanaleikanum, því þannig getum við stuðlað að aukinni huggun og heilsu.
Reiðin er tilfinning sem snýr síðan út á við. Reiðin krefst útrásar, krefur okkur til athafna og verka. Stundum bitnar hún á þeim sem síst skyldi, sem við skulum passa okkur á. Reiðin á einnig rétt á sér, er eðlilegt og heilbrigt viðbragð við ákveðnum aðstæðum. Mikilvægt er að finna reiðinni farsælan farveg, því ekki viljum við sitja uppi með reiðina í langan tíma því slíkt getur valdið gremju. Reiðin getur farið verst með þann sem byrgir hana inni, veitir henni ekki útrás, fer verst með mann sjálfan.
Hreyfing, hollur matur og góður svefn eru dýrmæt bjargráð á vegi sorgarinnar. Hreyfing og útivist hafa áhrif til góðs á tilfinningalegt jafnvægi og heilsu.
Sektarkenndin, skömmin og léttirinn eru allt eðlilegir fylgifiskar sorgar og missis. Hvað ef…? Ég hefði kannski ekki átt að… . Mikið sé ég nú eftir að hafa ekki… . Ég skammast mín fyrir að hafa gert þetta eða hitt, eða ekki gert þetta eða hitt. Og svo getur léttir verið reynslan þegar sjúkdómar hafa plagað lengi og ekkert annað framundan en að sleppa tökunum, þá finnum við stundum létti, sem er eðlilegt.
Svo er það söknuðurinn. Við söknum þess sem við höfum átt og misst. Söknuðurinn getur verið yfir því sem var, en einnig yfir því sem aldrei varð og hefði kannski átt að vera.
Og svo er það sorgin.
Sorgin á sér uppsprettu í því sem manni þykir vænt um
Það er mikilvægt að muna að sorgin á sér uppsprettu í því sem manni þykir vænt um, á sér uppsprettu þar sem fyrir er ást, virðing og gleði.
Mikilvægt er að ræða saman, orða tilfinningarnar sem bærast í brjósti manns, hlusta hvert á annað. Ýmsir aðilar í okkar samfélagi geta veitt stuðning og aðstoð. Á vettvangi Sorgarmiðstöðvarinnar er hægt að sækja fræðslu og ýmsa stuðningsfundi. Á vettvangi Áfallamiðstöðvarinnar er veitt ýmiskonar aðstoð og einnig hjá Píeta samtökunum. Eins hjá Sálgæslu- og fjölskylduþjónustu kirkjunnar, þar sem fagfólk veitir leiðsögn og stuðning. Svo vill sá sem hér stendur, presturinn, vera til staðar, og einnig góðir kollegar mínir hér við Bústaðakirkju og Grensáskirkju.
Endilega nýtið ykkur þann stuðning, sem ykkur hugnast best. Verst er ef maður finnur sig einan með erfiðar tilfinningar. Pössum okkur að einangra okkur ekki, heldur leitum samtals og fræðslu, til að opna leiðina að aukinni huggun og heilsu.
Í raun og veru eru verkefni okkar hér í heimi einföld, en þau eru fólgin í því er við mætum hvert öðru í gleði og alvöru og tökum þátt í lífinu hvert með öðru. Þar miðlum við öll bæði visku og blessun, huggun og styrk, því einnig við eigum að vera hvert öðru og samferðarfólki okkar til gæfu. En einmitt þar er það Guðs kærleikur sem mætir okkur, þegar við vöknum á hverjum morgni og við blasa nýir möguleikar og ný tækifæri til að verða öðrum til gagns, þótt það sé jafnvel ýmislegt í okkar eigin lífi sem er erfitt og sárt.
Salt og ljós
Og það er jú boðskapur dagsins, allrar heilagrar messu, textanna sem lesnir voru hér í dag.
Textarnir miðla nærveru kærleiksríks Guðs, sem elskar þig og alla menn. Það er kærleikans boðskapur sem mætir okkur á vegi sorgarinnar. Guð elskar þig.
Og það er í gegnum samfylgd við hið góða, trú á Jesú og eftirfylgd við orð hans, sem mannssálin finnur leiðina að vatnslindum lífsins, svo vitnað sé í texta Opinberunarbókarinnar. Þar er einmitt talað um hina miklu þrengingu og svo leiðina út úr þrengingunni.
Þeir sem hafa misst ástvini hafa fundið fyrir hinni miklu þrengingu. Fyrirheitið sem presturinn og höfundur Opinberunarbókarinnar miðlar er að samfylgdin við Jesú mun gera það að verkum að okkur mun hvorki hungra né þyrsta framar því að lambið, sem er fyrir miðju hásætinu, eins og segir í textanum, lambið sem er Jesús Kristur, mun vera hirðir okkar og leiða okkur til vatnslinda lífsins. Og Guð mun þerra hvert tár af augum okkar. Þar er ekki litlu lofað.
Og myndlíkingin í guðspjalli dagsins, úr Fjallræðu Jesú, fjallar um salt og ljós.
Tækifærið sem við höfum þegar við stöndum frammi fyrir sorg og missi, er einmitt að ganga veg sorgarinnar, leyfa okkur að vera manneskjur, vera meyr og sár, finna tilfinningunum farsælan farveg. Á þann máta finnum við með tímanum að við erum á ákveðinni vegferð, þar sem við getum síðan, komið að gangi, orðið öðrum sem salt og ljós í heiminum.
Jesús hvetur okkur til að vera öðrum ljós, sem þýðir í mínum huga að miðla öðrum af reynslu okkar, vera síðan öðrum stuðningur, á grundvelli reynslunnar, á grundvelli þess að við höfum gengið veg sorgar og missis, gengið í gegnum þrengingar í átt að vatnslindum lífsins, eins og segir í textanum. Þar höfum við öll tækifæri til að láta gott af okkur leiða.
Og síðan þegar dagar okkar eru taldir, þegar við höfum varið lífinu öllu sem okkur er gefið, þá megum við vona og reikna með því að Guð sé einnig bak við dagana. Í dauðanum og myrkrinu sem honum virðist fylgja, að þar mæti Guð okkur með gleðina, ljósið og eilífa lífið.
Dýrð sé Guð, föður og syni og heilögum anda. Svo sem var í upphafi er og verður um aldir alda. Amen.
Lexía: 5M 33.1-3
Pistill: Opb 7.13-17
Guðspjall: Matt 5.13-16
Prédikun flutt í Bústaðakirkju á Allra heilagra messu, 1. nóvember 2026