Sálmabók

123. Á skírdagskvöld ég kem til þín

Spila hljóðdæmi
0:00
0:00
hymn notes

1 Á skírdagskvöld ég kem til þín
sem kvittað hefur brotin mín,
ég kem sem barn og bið í trú
að blessun enn mér veitir þú.

2 Þú gafst þitt hold, þú gafst þitt blóð,
því geng ég rósum prýdda slóð,
ég hjá þér sannan fögnuð finn,
þú frelsari og Drottinn minn.

3 Ég finn að náð þín frelsar mig,
minn frelsari, ég elska þig,
þitt blóðið mína borgar sekt,
þín blessun hylur mína nekt.

  • TGuðrún Guðmundsdóttir – Sb. 1972
  • LGesius 1603 – Gr. 1691
    Mein Seel, o Herr, muß loben dich
  • Sálmar með sama lagi
  • Eldra númer 140
  • Eldra númer útskýring T+L
  • Biblíutilvísun Lúk. 22.14–21