Sálmabók
560a. Bænin má aldrei bresta þig
Spila hljóðdæmi
0:00
0:00
1 Bænin má aldrei bresta þig,
búin er freisting ýmislig.
Þá líf og sál er lúð og þjáð
lykill er hún að Drottins náð.
2 Andvana lík, til einskis neytt,
er að sjón, heyrn og máli sneytt,
svo er án bænar sálin snauð,
sjónlaus, köld, dauf og rétt steindauð.
3 Vaktu, minn Jesú, vaktu' í mér,
vaka láttu mig eins í þér.
Sálin vaki þá sofnar líf,
sé hún ætíð í þinni hlíf.
- THallgrímur Pétursson Ps. 4
- LGesius 1603 – Gr. 1691Mein Seel, o Herr, muß loben dich
- Sálmar með sama lagi
- Eldra númer 337
- Eldra númer útskýring T+L