Sálmabók

119a. Kem ég nú þínum krossi að

Spila hljóðdæmi
0:00
0:00
hymn notes

1 Kem ég nú þínum krossi að,
kannastu, Jesú minn, við það,
syndanna þunginn þjakar mér,
þreyttur ég nú að mestu er.

2 Þar við huggar mín sála sig,
svoddan allt leiðstu fyrir mig,
þíns hjartadreyra heilög lind
hreinsar mig vel af allri synd.

3 Dauðanum mót mér djörfung ný
daglega vex af orði því:
Í dag, þá líður ei langt um það,
leidd verður önd í sælustað.

4 Ó, Jesú, séu orðin þín
andláts síðasta huggun mín.
Sál minni verði þá sælan vís
með sjálfum þér í Paradís.

  • THallgrímur Pétursson Ps. 40
  • LGesius 1603 – Gr. 1691
    Mein Seel, o Herr, muß loben dich
  • Sálmar með sama lagi
  • Eldra númer 138
  • Eldra númer útskýring T