Sálmabók

155. Hirðisraust þín, Herra blíði

Spila hljóðdæmi
0:00
0:00
hymn notes

1 Hirðisraust þín, Herra blíði,
hljómi skært í eyrum mér
svo ég gjarna heyri' og hlýði
hennar kalli' og fylgi þér,
þér sem vegna þinna sauða
þitt gafst sjálfur líf í dauða,
þér sem ert mín hjálp og hlíf,
huggun, von og eilíft líf.

2 Herra minn og hirðir góði,
hjarta mitt skal prísa þig
því ég veit að þú með blóði
þínu hefur frelsað mig.
Undir hirðishendi þinni
hólpið æ er sálu minni
og þú glatar aldrei mér
ef ég hlýðinn fylgi þér.

  • TBjörn Halldórsson – Sb. 1886
  • LWolfgang Wessnitzer 1661 – Sb. 1871
    Jesu, meines Lebens Leben
  • Sálmar með sama lagi
  • Eldra númer 161
  • Eldra númer útskýring T+L
  • Biblíutilvísun Jóh. 10.11