Sálmabók

575. Mig lát, Jesú, með þér ganga

Spila hljóðdæmi
0:00
0:00
hymn notes

1 Mig lát, Jesú, með þér ganga,
mega rekja fótspor þín
svo í lífsins stríði stranga
styttist þrautasporin mín.
Lát mig ganga' á ljósum degi,
lát mig ganga' á kærleiksvegi,
gakk þú æ á undan mér
eg svo megi fylgja þér.

2 Mig lát, Jesú, með þér líða,
mega bera hér þinn kross
svo ég eftir sáran kvíða
síðar öðlist gleðihnoss.
Eftir táraskúr úr skýjum
skín þín sól með geislum hlýjum.
Hér ef ber ég þraut með þér
þín mun gleði veitast mér.

3 Mig lát, Jesú, með þér deyja,
minn þú dauða sigrað fékkst,
stríðið er ég átti að heyja,
í það fyrir mig þú gekkst.
Lát mig burt frá löstum deyja
lífs á meðan hlýt ég þreyja,
lát mig deyja lífs með þér,
lif þú aftur svo í mér.

4 Mig lát, Jesú, með þér lifa,
með þér rísa dauða frá,
lát þú engil bjargið bifa
brjósti mér er liggur á.
Einn sé jafnan okkar vilji,
okkur líf né dauði' ei skilji.
Lát mig ætíð lifa þér
lífið þitt svo veitist mér.

  • TSigmund von Birken 1653 – Valdimar Briem – Sb. 1886
    Lasset uns mit Jesus ziehen
  • LWolfgang Wessnitzer 1661 – Sb. 1871
    Jesu, meines Lebens Leben
  • Sálmar með sama lagi
  • Eldra númer 362
  • Eldra númer útskýring T+L