Sálmabók

238. Héðan burt vér göngum glaðir

Spila hljóðdæmi
0:00
0:00
hymn notes

Héðan burt vér göngum glaðir,
Guð, úr þínu húsi nú,
allt vér þökkum, elsku faðir,
enn er hér oss veittir þú:
Lífsins orða ljósið bjarta,
læknismeðal sjúku hjarta,
endurnæring, hressing, hlíf,
huggun, svölun, kraft og líf.

  • TValdimar Briem – Sb. 1886
  • LWolfgang Wessnitzer 1661 – Sb. 1871
    Jesu, meines Lebens Leben
  • Sálmar með sama lagi
  • Eldra númer 248
  • Eldra númer útskýring T+L