Sálmabók

523. Andi Guðs, mér virstu vísa

Spila hljóðdæmi
0:00
0:00
hymn notes

Andi Guðs, mér virstu vísa
veginn trúar réttan á,
vonarstjörnu lát mér lýsa
lífs að höfn ég megi ná.
Elsku hreina hjá mér kveik,
helga svo mín áform veik
að hvert sporið ævi minnar
einkunn beri náðar þinnar.

  • THelgi Hálfdánarson – Sb. 1886
  • LJohann Schop 1642 – Paradísarlykill 1686 – Sb. 1751
    Werde munter mein Gemüte