
Bogi og Bítlarnir í Bústaðakirkju
Miðvikudagur 18. nóvember
kl. 13:00 - 15:00
Bústaðakirkja- Tónlist
- Eldri borgarar
Bogi Ágústsson fréttamaður Ríkissjónvarpsins verður gestur eldri borgarastarfsins í Bústaðakirkju miðvikudaginn 18. nóvember nk. kl. 13:30.
Bogi er okkur öllum að góðu kunnur af fréttastofu RÚV, þar sem hann starfaði við góðan orðstýr í áratugi.
Stórfréttir vikunnar eða ástand heimsmálanna verða þrátt fyrir það ekki á dagskránni heldur stórhljómsveitin Bítlarnir.
Bogi mun fjalla um sögu Bítlanna og helstu lög hljómsveitarinnar í erindi sínu í Bústaðakirkju.
Dagskráin hefst kl. 13 og síðan verða kaffiveitingar um klukkan 14:30.
Verið hjartanlega velkomin til þátttöku og takið vini ykkar með.