mynd af atburðinum
Öryggi barnanna okkar- Foreldramorgnar í Guðríðarkirkju
Miðvikudagur 28. október
kl. 10:00 - 12:00
Guðríðarkirkja
  • Eldri borgarar
  • Fjölskyldur
  • Fullorðnir

🚗👶 Öryggi barnanna okkar í umferðinni

Foreldramorgnar í Guðríðarkirkju – miðvikudaginn 28. október kl. 10–12

Við fáum til okkar góðan gest frá Samgöngustofu, Bjarklindi Björk Gunnarsdóttur, sérfræðing í öryggis- og fræðsludeild, sem ætlar að fræða okkur um umferðaröryggi barna.

Hvernig tryggjum við öryggi litlu barnanna okkar í bílnum? Hvað þurfum við að hafa í huga varðandi barnabílstóla, réttan frágang og öryggi barna í umferðinni almennt?

Bjarklind mun fara yfir mikilvæg atriði sem gott er fyrir alla að þekkja og gefst einnig tækifæri til að spyrja spurninga.

Við hvetjum alla til að mæta! 💛 Fræðslan er ekki aðeins ætluð foreldrum í fæðingarorlofi heldur líka verðandi foreldrum, ömmum, öfum og öllum þeim sem annast ung börn eða vilja fræðast um öryggi þeirra í umferðinni. Það er mikilvægt að allir sem ferðast með börn þekki til öryggismála.

☕ Foreldramorgnarnir hefjast kl. 10 og fræðslan byrjar um kl. 10:30.

Verið hjartanlega velkomin í Guðríðarkirkju í notalega samveru, spjall og gagnlega fræðslu. 💛