
Víkurkirkja tekur þátt í hinni árlegu Regnbogahátíð sem haldin er í Mýrdalnum ár hvert. Í ár verður hún frá 8.-11. október og í samráði við framkvæmdastjóra háíðarinnar, Ailsa Guild, var messutíminn ákveðinnn 8. október klukkan 20:00!
Við erum svo heppin að Hjördís Ásta Þórisdóttir hefur þegið boð um að koma og syngja fyrir okkur ásamt Daníel Óliver. Sungið verður á íslensku og ensku. Yuichi Yoshimoto mun leika á hljómborð.
Við þetta tækifæri mun fjölskylda Pálma og Dagnýjar Kristjánsbarna afhenda granítbekk - vinabekk sem staðsettur verður í Víkurkirkjugarði, til minningar um börn þeirra sem bæði létust í blóma lífsins.
Um leið og við minnumst þeirra sem á undan eru farin, ætlum við að fagna lífinu með því að klæðast litríkum fatnaði.