
Kirkja í mótun - Myndlist í Hallgrímskirkju
Þriðjudagur 27. október
kl. 12:00 - 13:00
Hallgrímskirkja- Ferðamenn
- Eldri borgarar
- Staðbundið
- Listir
Kirkja í mótun
Hádegisfyrirlestrar í Hallgrímskirkju á þriðjudögum í október 2026 kl. 12:00–13:00. Léttar veitingar í boði.
Í tilefni af 40 ára vígsluafmæli kirkjunnar gefa fyrirlestrarnir að þessu sinni áheyrendum tækifæri til að kynnast kirkjubyggingunni nánar, hugmyndunum sem liggja að baki hönnunar hennar og þeirri sögu sem mótað hefur kirkjuna, umhverfi hennar og stöðu hennar sem eins helsta kennileitis Reykjavíkur.
Lokafyrirlestur fyrirlestrarraðarinnar Kirkja í mótun ber fyrirsögnina Myndlist í Hallgrímskirkju og fer fram 27. október kl. 12-13. Fyrirlesari er Aðalheiður Valgeirsdóttir, myndlistarmaður og listfræðingur
HALLGRÍMSKIRKJA – Í MÓTUN