mynd af atburðinum
Hausttónleikar Kammerkórs Seltjarnarneskirkju í Skálholti
Laugardagur 19. september
kl. 16:00 - 18:00
Skálholtsdómkirkja
  • Eldri borgarar
  • Tónlist

Kammerkór Seltjarnarneskirkju ásamt hljóðfæraleikurum verða með tónleika sunnudaginn 19. septemberkl. 16 í Skálholtskirkju.

Aðgangur Ókeypis.

Á efnisskránni eru kórverk eftir m.a. Arvo Pärt, Ēriks Ešenvalds, Vytautas Miškinis og Johannes Brahms, auk verka eftir meðlimi Bach-fjölskyldunnar.

Rúsínan í pylsuendanum verða tvær mótettur eftir Johann Sebastian Bach: Lobet den Herrn (BWV 230) og Jesu, meine Freude (BWV 227).

Hljóðfæraleikarar:

Páll Einarsson selló

Kjartan Guðnason kontrabassi

Jón Bjarnason orgel

Stjórnandi: Friðrik Vignir Stefánsson