
Sagnfræðingafélag Íslands heldur opinn fund í Neskirkju miðvikudaginn 18. nóvember klukkan 19:30.
Við fjöllum um Ísland í seinni heimsstyrjöld og samskipti ríkis og landsmanna við umheiminn, bæði í aðdraganda stríðsins og meðan á því stóð.
Framsögumenn eru Florian Jacob, menntaður menntaskólakennari og sagnfræðingur, doktorsnemi við Humboldt-háskólann í Berlín, og Leifur Reynisson, sagnfræðingur og rithöfundur.
Florian flytur erindið Ísland og þriðja ríkið. Þar fjallar hann um samskipti Íslands og Þýskalands á fjórða áratug síðustu aldar. Hann beinir sjónum sínum að frumheimildum frá starfsemi þýska sendiráðsins í Kaupmannahöfn og þýsku ræðismannsstofunnar í Reykjavík. Hann rýnir sérstaklega í svokallað Lufthansa-mál frá 1939 og þau áhrif sem flugmál höfðu á diplómatísk samskipti ríkjanna í aðdraganda síðari heimsstyrjaldar.
Leifur sendi í haust frá sér bókina Hernámsæskan um það hvernig hernámið birtist íslenskum ungmennum. Erindi hans ber heitið Sköpunarsaga Hernámsæskunnar og fjallar Leifur þar bæði um rannsóknir sínar og hvernig hann miðlar sögunni í bók sinni. Hernámið hafði mikil áhrif á Íslandi, með hernum kom vinna en líka mikil menningaráhrif.