
Fermingarafmælishátíð 11.október kl 11.00
Sunnudagur 11. október
kl. 11:00 - 13:00
Hafnarfjarðarkirkja- Eldri borgarar
- Fjölskyldur
Fermingarafmælismessa í Hafnarfjarðarkirkju
Sunnudaginn 11. október kl. 11.00 verður hátíðleg fermingarafmælismessa í Hafnarfjarðarkirkju þar sem við fögnum 50, 60, 70 og 75 ára fermingarafmælum.
Sr. Petrína Mjöll Jóhannesdóttir og sr. Jónína Ólafsdóttir sjá um stundina.
Cantus, kór Hafnarfjarðarkirkju, syngur og Kári Þormar er organisti.
Fermingarafmælisbörn annast ritningarlestra.
Að messu lokinni verður boðið upp á hádegisverð þar sem Ingvar Viktorsson rifjar upp skemmtilegar sögur og minningar.
Athugið að nauðsynlegt er að skrá sig í hádegisverðinn. Skráning fer fram í síma 520 5700.
Verið hjartanlega velkomin til hátíðlegrar samveru, þar sem við rifjum upp góðar minningar og fögnum tímamótum saman! 💛