
Bleik messa í Djúpavogskirkju
Sunnudagur 11. október
kl. 11:00 - 13:00
Djúpavogskirkja- Tónlist
Bleik messa verður haldin í Djúpavogskirkju sunnudaginn 11. október kl. 11:00 í tilefni af Bleikum október.
Séra Sveinbjörn Dagnýjarson leiðir athöfnina.
Á dagskrá verður erindi frá Krabbameinsfélagi Austfjarða ásamt fallegum tónlistarflutningi.
Við hlökkum til að sjá ykkur og eiga saman notalega stund þar sem við komum saman, njótum tónlistar og gefum okkur rými til samveru og umhugsunar. 💗