
Félagsstarf eldriborgara miðvikudag, haustferð lagt verður af stað kl 12:30 frá Bústaðakirkju
Miðvikudagur 16. september
kl. 12:30 - 14:30
Bústaðakirkja- Eldri borgarar
Haldið verður í nágranna sveitafélagið Mosfellsbæ og þar verður Ásgarður heimsóttur( vinnustaður fatlaðra) og fáum við að vita allt um starfsemina og listaverkin sem eru framleidd þar. Þaðan liggur leið upp í Mosfellsdal þar sem Dalsgarður verður heimsóttur, Gísli rósabóndi tekur þar á móti okkur og sýnir og okkur ræktunarstöðina.
Kaffi og með því snætt í golfskálanum í Mosó, Blik bistro og að endingu förum við á Lágafellskirkju þar sem að séra Arna Grétarsdóttir tekur á móti okkur.Skráning er hjá Hólmfríði djákna, holmfridur@kirkja.is
Verð 5000kr