Nefndir, félög og stofnanir
Innan Þjóðkirkjunnar og í tengslum við hana eru starfrækt hin ýmsu félög, nefndir og stofnanir. Hér að neðan eru nánari upplýsingar ásamt upplýsingar um nefndarmenn og tengiliði.
Djáknafélag Íslands
Djáknafélag Íslands var stofnað 5. apríl 1995. D.Í. er fagfélag en djáknar tilheyra ýmsum stéttarfélögum.
Formaður:
Elísabet Gísladóttir - elisabetgisladottir@simnet.is
Ellimálanefnd
Ellimálanefnd þjóðkirkjunnar hefur það hlutverk að styðja og efla kirkjulegt starf með eldri borgurum í Þjóðkirkjunni um allt land, í söfnuðum, prófastsdæmum eða á þeim stöðum þar sem skipuleg þjónusta er veitt öldruðum af kirkjulegum aðilum.
Formaður:
Sr. Bjarni Þór Bjarnason - bjarni@seltjarnarneskirkja.is
Nefndarmenn:
Sr. Bára Friðriksdóttir - bara.fridriksdottir@kirkjan.is
Magnea Sverrisdóttir - magnea@kirkjan.is
Félag íslenskra organleikara
FÍO var stofnað þann 17. júní 1951. Félagið er fagfélag organista á Íslandi. Tilgangur þess er að gæta hagsmuna félagsmanna; að stuðla að faglegri uppbyggingu meðal félagsmanna; að stuðla að tónleikahaldi, útgáfustarfsemi og eflingu kirkjutónlistar í landinu; og að viðhalda samskiptum við erlend systurfélög.
Allir organistar geta sótt um inngöngu í félagið.
FÍO er deild innan Félags íslenskra hljómlistarmanna (FÍH) sem er stéttarfélag organista.
Formaður:
Sveinn Arnar Sæmundsson - arnar@vidistadakirkja.is
Friðarsetur að Holti í Önundarfirði
Sjálfseignarstofnunin rekur kirkju-, félags- og menningarmiðstöð á eigin ábyrgð í húsnæði fyrrum Holtsskóla, sem stendur á landi prestssetursjarðarinnar að Holti í Önundarfirði. Hlutverk stofnunarinnar er að standa fyrir fjölbreyttu kirkju- og menningarstarfi svo sem fundum, námskeiðum, fræðslu, helgihaldi, fjölþjóðastarfi, sumardvöl, friðardögum o.fl. Ennfremur skal stofnunin skapa aðstöðu til félagsstarfs fyrir heimamenn og velunnara.
Staðarhaldari:
Sr. Fjölnir Ásbjörnsson - srfjolnir@simnet.is
Handbókarnefnd
Handbókarnefnd sér um að semja og endurskoða Handbók þjóðkirkjunnar, sem er helgisiðabók kirkjunnar með leiðbeiningum og formum fyrir messur og aðrar kirkjuathafnir.
Formaður:
Dr. Sigríður Guðmarsdóttir - sigridur@hi.is
Varaformaður:
Sr. Þorgeir Arason - thorgeir.arason@kirkjan.is
Helgisiðanefnd
Formaður:
Sr. Kristján Valur Ingólfsson - kristjan.valur.ingolfsson@gmail.com
Hið íslenska Biblíufélag
Hið íslenska biblíufélag (HÍB) var stofnað 10. júlí 1815 og er elsta starfandi félag á Íslandi. Markmið þess er að vinna að útgáfu, útbreiðslu og notkun Biblíunnar. HÍB er samtök fólks úr öllum kirkjudeildum og kristnum trúfélögum. Allir geta gerst félagar.
Framkvæmdastjóri:
Halldór Elías Guðmundsson - hib@biblian.is
Hjálparstarf kirkjunnar
Hópslysanefnd
Hópslysanefnd kirkjunnar hefur yfirumsjón með skipulagi á viðbrögðum kirkjunnar vegna stórslysa og þegar almannavarnarástand ríkir.
Formaður:
Ásta Ágústsdóttir djákni - asta.agustsdottir@kirkjan.is
Nefndarmenn:
Eva Björk Valdimarsdóttir biskupsritari - eva@kirkjan.is
Bjarni Gíslason - bjarni@help.is
Sr. Vigfús Bjarni Albertsson - vigfus.bjarni.albertsson@kirkjan.is
Sr. Guðlaug Helga Ásgeirsdóttir - gudlauga@landspitali.is
Kenningarnefnd
Formaður:
Guðrún Karls Helgudóttir, biskup Íslands - biskup@kirkjan.is
Nefndarmenn
Arnfríður Einarsdóttir - arnfridur@domstolar.is
Dr. Arnfríður Guðmundsdóttir - agudm@hi.is
Dr. Sigurjón Árni Eyjólfsson - sae@mmedia.is
Kirkjuhúsið - Skálholtsútgáfa
Skálholtsútgáfan er útgáfufélag Þjóðkirkjunnar og rekur verslunina Kirkjuhúsið. Hún er jafnframt þjónustumiðstöð fyrir kirkjur á Íslandi.
Framkvæmdastjóri:
Edda Möller - edda@skalholtsutgafa.is
Kirkjumiðstöð Austurlands, Eiðum
Kirkjumiðstöð Austurlands er sjálfseignarstofnun á vegum safnaðanna á Austurlandi. Kirkjulegar sumarbúðir hafa verið á Eiðum síðan sumarið 1968. Framan af árum í húsnæði barnaskólans en frá 1992 í byggingu Kirkjumiðstöðvarinnar við Eiðavatn sem var vígð 25. ágúst 1991.
Staðarhaldari:
Sr. Sigríður Rún Tryggvadóttir - sigridur.run.tryggvadottir@kirkjan.is
Kirkjutónlistarráð
Kirkjutónlistarráð er stjórn Tónskóla Þjóðkirkjunnar og fagráð í kirkjutónlistarmálum. Það starfar í samráði við söngmálastjóra þjóðkirkjunnar.
Kirkjutónlistarráð ber ábyrgð á að skólinn sinni skyldum sínum og haldi sig innan fjárheimilda hverju sinni.
Formaður:
Sr. Irma Sjöfn Óskarsdóttir - irma@hallgrimskirkja.is
Nefndarmenn:
Bjartur Logi Guðnason
Sr. Jónína Ólafsdóttir
KFUM og KFUK á Íslandi
KFUM og KFUK er kristileg æskulýðshreyfing sem hefur það að markmiði að stuðla að heilbrigði einstaklingsins til líkama sálar og anda. KFUM og KFUK stendur fyrir faglegu barna- og æskulýðsstarfi en félagið starfrækir fimm sumarbúðir og um 30 æskulýðsdeildir víðs vegar um landið, auk þess að standa fyrir leiðtogaþjálfun og fjölbreyttum viðburðum allt árið um kring.
Framkvæmdastjóri:
Tómas Torfason - tomas@kfum.is
Kjaranefnd Þjóðkirkjunnar
Kjaranefnd Þjóðkirkjunnar er kosið af kirkjuþingi og er hlutverk þess skv. reglum kirkjuþings:
1. Að gæta hagsmuna þjóðkirkjunnar gagnvart samtökum þeirra launþega sem ráðnir eru þar til starfa, sérstaklega að því er varðar kaup og kjör.
2. Að koma fram sem samningsaðili fyrir hönd þjóðkirkjunnar gagnvart stéarfélögum hlutaðeigandi starfsfólks eða öðrum þeim, sem umboð hafa til slíkrar samningsgerðar.
3. Að vinna að því að móta starfskjarastefnu þjóðkirkjunnar.
4. Að ákvarða laun biskups Íslands og vígslubiskupa.
5. Að ákveða þóknun fyrir störf í nefndum, ráðum, starfshópum og teymum á vegum þjóðkirkjunnar. Enn fremur ákveður nefndin þingfararkaup kirkjuþingsfulltrúa.
Formaður:
Einar Karl Haraldsson - einarkarl@internet.is
Nefndarmenn:
Anna Mjöll Karlsdóttir
Guðrún J. Zoëga
Kjörstjórnir Þjóðkirkjunnar
Kjörstjórnir þjóðkirkjunnar annast undirbúning og framkvæmd kosninga innan þjóðkirkjunnar, svo sem til kirkjuþings og embættis biskups Íslands
Kjörstjórn Þjóðkirkjunnar:
Formaður:
Anna Mjöll Karlsdóttir - annamkarls@gmail.com
Nefndarmenn:
Sr. Anna Sigríður Pálsdóttir
Andri Árnason
Yfirkjörstjórn Þjóðkirkjunnar:
Formaður:
Sigrún Benediktsdóttir - sigrun.ben@simnet.is
Nefndarmenn:
Egill Heiðar Gíslason
Sr. Magnús B. Björnsson
Prestafélag Íslands
Prestafélag Íslands var stofnað á prestastefnu þann 28. júní 1918.
Félagið er málsvari íslenskra presta og guðfræðinga og gætir hagsmuna þeirra í öllu því er varðar störf þeirra og kjör, embætti, réttindi og skyldur. Félagið er í senn stéttarfélag og fagfélag presta og guðfræðinga. Félagið stendur vörð um heill og sóma félagsmanna, stuðlar að endurmenntun þeirra og eflir með þeim stéttvísi og samstarf.
Formaður:
Sr. Þorgrímur Daníelsson - dagvar@mi.is
Prófastafélag Íslands
Prófastafélag Íslands er fagfélag prófasta innan íslensku þjóðkirkjunnar. Félagið gætir hagsmuna prófasta í samstarfi og samráði við yfirvöld og kirkjustjórn, auk þess að veita umsagnir um lagafrumvörp og önnur mál er varða kirkjuna og trúfélög á Alþingi.
Formaður:
Sr. Hans Guðberg Alfreðsson - hans.gudberg.alfredsson@kirkjan.is
Stjórn Skálholts
Stjórn Skálholts er skipuð af kirkjuþingi. Stjórnin er framkvæmdastjórn og starfa framkvæmdastjóri og vígslubiskup með stjórninni í forsvari og ábyrgð fyrir staðinn. Stjórnin vinnur að því að efla starfsemi staðarins í samræmi við lög og starfsreglur kirkjuþings og eftir nánari ákvörðun kirkjuráðs og biskups Íslands.
Formaður:
Þorsteinn Pálsson - thp@internet.is
Nefndarmenn:
Sr. Óskar Hafsteinn Óskarsson
Sólborg Lilja Steinþórsdóttir
Stofnun dr. Sigurbjörns Einarssonar
Stofnun dr. Sigurbjörns Einarssonar er rannsóknarstofa í trúarbragðafræðum og sáttargjörð sem Þjóðkirkjan stofnaði til á Kirkjuþingi 2008 og var fyrsta stjórnin skipuð árið 2010. Á ensku má þýða heiti hennar The Icelandic Institute for Religion and Reconciliation.
Formaður:
Bogi Ágústsson - bogia@ruv.is
Stjórnarmenn:
Dr. Arnfríður Guðmundsdóttir - agudm@hi.is
Magnús Þorkell Bernharðsson - mthb@hi.is
Sr. Matthildur Bjarnadóttir - matthildur.bjarnadottir@kirkjan.is
Strandarkirkjunefnd
Strandarkirkjunefnd er sérstök nefnd sem ber ábyrgð á umsjón, daglegum rekstri og viðhaldi hinna merku áheitakirkju Strandarkirkju í Selvogi.
Formaður:
Ragnhildur Benediktsdóttir - ragnh.ben@gmail.com
Nefndarmenn:
Sr. Jón Ragnarsson - jon.ra@kirkjan.is
Sr. Sigríður Munda Jónsdóttir - sigridur.munda.jonsdottir@kirkjan.is
Tónlistarsjóður kirkjunnar og STEFs
Tónlistarsjóður kirkjunnar er samstarfsverkefni STEFs og Þjóðkirkjunnar og starfar skv. stofnskrá hans, sem samþykkt var 2. apríl 2022. Markmið sjóðsins er að efla kirkjulega tónlist og textagerð við slíka tónlist. Í því skyni styrkir sjóðurinn frumsköpun tónlistar og texta, útsetningar, útgáfu og önnur þau verkefni sem samræmast tilgangi sjóðsins. Þá er heimilt að veita styrki úr sjóðnum í viðurkenningarskyni fyrir störf á sviði kirkjutónlistar. Ekki er sérstakt eyðublað fyrir umsóknir, en óskað er eftir greinargóðri lýsingu á verkefninu ásamt kostnaðaráætlun. Sýnishorn eða brot af verkum sem um ræðir mega gjarnan fylgja með umsóknum. Auglýst er eftir umsóknum að hausti og úthlutað úr sjóðnum einu sinni á ári, í lok árs.
Formaður:
Sigurður Flosason - sigurdurf@kirkjan.is
Nefndarmenn:
Sr. Davíð Þór Jónsson
Hilmar Örn Agnarsson
Tónskóli Þjóðkirkjunnar
Finna má ítarlegar upplýsingar um Tónskóla Þjóðkirkjunnar á síðu Tónskólans hér.
Umhverfisnefnd Þjóðkirkjunnar
Umhverfisnefnd þjóðkirkjunnar er falið að fylgja eftir umhverfisstefnunni sem samþykkt var á kirkjuþingi 2017.
Formaður:
Axel Árnason Njarðvík - axel.arnason@kirkjan.is
Nefndarmenn:
Elínborg Sturludóttir
Sigríður Rún Tryggvadóttir
Úrskurðarnefnd Þjóðkirkjunnar
Úrskurðarnefnd þjóðkirkjunnar starfar samkvæmt starfsreglum kirkjuþings nr. 36/2022-2023. Úrskurðarnefnd var lögð niður frá og með 1. apríl með ákvörðun 67. kirkjuþings 2025-2026.