Starf í teymi sálgæslu
Landspítali auglýsir laust starf í teymi sálgæslu á spítalanum. Starfsfólk teymisins veitir sálgæslu og stuðning til sjúklinga, aðstandenda og samstarfsfólks á öllum sviðum spítalans. Starfshlutfall er 80-100% og gert ráð fyrir ráðningu frá 1. júní 2025 eða eftir nánara samkomulagi.
Teymi sálgæslu sinnir sálgæslu og helgihaldi og starfar í samvinnu með öðru starfsfólki og teymum spítalans að velferð sjúklinga og aðstandenda þeirra auk starfsfólks. Þjónusta teymisins er veitt án aðgreiningar eftir trúar- eða lífsskoðunum. Markmið sálgæslunnar er að liðsinna þeim sem glíma við sárar tilfinningar, erfiðar tilvistarspurningar og aðlögun breyttra aðstæðna tengda veikindum eða alvarlegum áföllum.
Innan teymisins starfa nú sjúkrahúsprestar og sjúkrahúsdjákni. Opið er fyrir umsóknir frá öllum sem hafa viðeigandi menntun og þjálfun. Teymið er í virku samstarfi við félög og trúarsamtök utan spítalans til að mæta óskum og þörfum fjölbreytilegs samfélags um þjónustu.
Helstu verkefni og ábyrgð
Störf í teymi sálgæslu á LandspítalaSálgæsla og þjónusta við spítalann og deildir hans
Þverfagleg teymisvinna
Samstarf við trúar- og/eða lífskoðunarfélög í samræmi við óskir skjólstæðinga
Sálgæslan sinnir öllum sviðum Landspítala og ganga starfsmenn hennar bakvaktir á öllum deildum
Hæfnikröfur
Háskólamenntun sem nýtist í starfi, menntunarviðmið eru Mag. theol, eða djáknanám frá HÍ eða annað nám sem metið er sambærilegt
Viðurkennd framhaldsmenntun í sérhæfðri sálgæslu (CPE) eða sambærileg menntun
Viðurkenning til starfa innan trúar-og/ eða lífsskoðunarfélags viðkomandi
Haldgóð reynsla af sálgæslustarfi; starfsreynsla af sálgæsluþjónustu
Reynsla af starfi á sjúkrahúsi er kostur
Reynsla af helgihaldi er kostur
Mjög góðir samskipta- og samstarfshæfileikar
Mjög rík þjónustulund og jákvætt viðmót
Reynsla af þverfaglegri teymisvinnu
Góð íslensku- og enskukunnátta
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Viska - stéttarfélag hafa gert.
Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi og afriti af prófskírteinum og starfsleyfi, ef við á. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.
Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.
Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, sbr. 2. gr. reglna nr. 464/1996, um auglýsingar á lausum störfum með síðari breytingum.
Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, sálgæsla
Tungumálahæfni: íslenska 4/5, enska 4/5
Smelltu hér til að sækja um starfið
Starfshlutfall
80-100%
Umsóknarfrestur til og með
21.05.2025
Nánari upplýsingar
Gunnar Rúnar Matthíasson, gmatt@landspitali.is,
Sálgæsla presta og djákna
Fossvogur
108 Reykjavík