Krafa prestsvígðra kvenna er sanngjörn og eðlileg

15. janúar 2018

Krafa prestsvígðra kvenna er sanngjörn og eðlileg

Krafa prestsvígðra kvenna er sanngjörn og eðlileg
Fulltrúar prestvígðra kvenna afhentu í morgun yfirstjórn þjóðkirkjunnar áskorun, þar sem krafist er breytinga á vinnuumhverfi og -aðstæðum kvenna í kirkjunni. Líkt og konur í öðrum starfsstéttum hafa þær orðið fyrir kynbundinni áreitni, mismunun og jafnvel kynferðisofbeldi í starfi. Ásamt undirritaðri tóku forseti kirkjuþings og framkvæmdastjóri kirkjuráðs við áskoruninni, en henni fylgdu 64 frásagnir í anda #MeToo.

Ég er afar þakklát öllum þeim sem stigið hafa fram, sagt frá sinni reynslu og haldið á lofti kröfunni um heilbrigt og öruggt vinnuumhverfi, sanngirni og virðingu í samskiptum milli fólks. Það er mikilvægt að enginn loki augunum gagnvart þeirri samfélagslegu meinsemd sem kynbundið áreiti og ofbeldi sannarlega er, að því er virðist í öllum kimum samfélagsins.

Frásagnir prestvígðra kvenna komu mér ekki á óvart. Ég hef sjálf starfað innan kirkjunnar í nær 40 ár og bæði upplifað og séð ýmislegt á þeim tíma. Hitt er svo öllum ljóst, að kirkjan hefur um langa hríð reynt að vinna úr áreitnis- og ofbeldismálum þar sem sumt hefur tekist vel en annað síður.

Fyrir 20 árum setti kirkjan sér fyrst vinnureglur um meðferð áreitnismála sem upp kynnu að koma. Í tengslum við þær er nú verið að taka upp verklag í viðkvæmum aðstæðum, þar sem m.a. er gert ráð fyrir því að starfsfólk sæki sérstakt námskeið og fái þekkingu sína vottaða hjá utanaðkomandi sérfræðingum. Þá fer þjóðkirkjan fram á það við starfsfólk og umsækjendur um starf, að þeir heimili kirkjunni að afla upplýsinga úr sakaskrá og þar sem kannað verði hvort þeir hafi gerst brotlegir við barnaverndarlög, nokkra flokka almennra hegningarlaga og lög um ávana- og fíkniefni.

Starfsreglur kirkjunnar fela í sér heildstæða nálgun á málaflokkinn, þar sem mál eru sett í skýran fyrirfram skilgreindan farveg. Markmiðið er að tryggja rétta málsmeðferð hverju sinni og styðja við þolendur, t.d. hvetja þá til að kæra mál til lögreglu séu þau þess eðlis og veita hverjum og einum faglegan stuðning, og eftir atvikum einnig gerendum. Í sumum málum er kveðið á um skilyrðislausa tilkynningarskyldu til yfirvalda, frávísun úr starfi – ýmist tímabundna á meðan rannsókn stendur yfir eða varanlega – svo dæmi séu nefnd. Reglurnar hafa reynst vel en þarfnast stöðugrar rýni, ekki síst hvað varðar forvarnir og fræðslu.

Ég tek hjartanlega undir þá sanngjörnu og eðlilegu kröfu sem prestvígðar konur hafa sett fram. Ég mun leggja mig alla fram við að bæta starfsumhverfi kvenna og samskiptin milli fólks í kirkjusamfélaginu.

Agnes M. Sigurðardóttir, biskup Íslands.

Texti fyrst birtur á vefnum biskup.is
  • Biskup

  • Frétt

  • Biskup

Ólafur Egilsson

Vinir Hjálparstarfsins fræðast um starfið

24. apr. 2024
...stilla saman strengi
Söngvahátíð 7.jpg - mynd

Söngvahátíð barnanna á Akureyri og í Reykjavík

23. apr. 2024
...börnin syngja í útvarpsmessu á sumardaginn fyrsta
Bænagangan 3.jpg - mynd

Bænagangan 2024

23. apr. 2024
...á sumardaginn fyrsta