Biblían – minning og menning

1. október 2018

Biblían – minning og menning

Biblían – minning og menning. Á miðvikudögum í hádeginu.

Hver er fyrsta minningin um Biblíuna? Eða sú skemmtilegasta? Biblían kemur víða við sögu og flestir eiga sér einhverja persónulega minningu um hana. Persónur eða viðburðir Biblíunnar bergmála einnig í bókmenntum, listum og sögu heimsins. Áhrifasaga Biblíunnar er mikilfengleg. En áherslur samfélaga breytast og spurt er: Hvað í Biblíunni skiptir nútímafólk máli og hvað hefur hlutverki að gegna í menningu samtíðar?

Í haust mun hópur fólks tala um Biblíuna í Hallgrímskirkju, rifja upp persónulega minningu og ræða um nútímagildi biblíuboðskapar. Samverurnar verða á miðvikudögum, í Suðursal Hallgrímskirkju kl. 12-12,40. Enginn aðgangseyrir og allir eru velkomnir.

Stjórnendur eru prestar kirkjunnar, Irma Sjöfn Óskarsdóttir og Sigurður Árni Þórðarson.

3. október Ragnar Bragason, leikstjóri og kvikmyndagerðarmaður

10. október Gunnar Hersveinn, heimspekingur

17. október Auður Bjarnadóttir, jógakennari og leikstjóri

24. október Gísli Sigurðsson, rannsóknarprófessor

31. október Nanna Hlín Halldórsdóttir, heimspekingur

7. nóvember Sigríður Hjálmarsdóttir, framkvæmdastjóri

14. nóvember Oddný Eir Ævarsdóttir, rithöfundur

21. nóvember Guðrún Eva Mínervudóttir, rithöfundur
  • Fræðsla

  • Fræðsla

Hildur Björk Hörpudóttir

Sr. Hildur Björk ráðin

22. nóv. 2024
...prestur við Glerárkirkju
Halldór Bjarki Arnarson

Tónlist fyrir okkar eirðarlausu tíma

22. nóv. 2024
... Halldór Bjarki Arnarson semballeikari
Kári Þormar og Hólmfríður Jóhannesdóttir

Heiðursgesturinn átti 80 ára fermingarafmæli

21. nóv. 2024
...fermingarafmælishátíð í Hafnarfjarðarkirkju