Biskup viðstödd stofnun safnaðar grísku rétttrúnaðarkirkjunnar

5. apríl 2019

Biskup viðstödd stofnun safnaðar grísku rétttrúnaðarkirkjunnar

Þann 7. apríl nk. stofnar gríska rétttrúnaðarkirkjan íslenskan söfnuð með athöfn sem fer fram í Friðrikskapellu. Athöfnin er öllum opin.

Agnes biskup verður viðstödd atburðinn og þjóðkirkjan fagnar þessum nýja vettvangi fyrir fólk til að iðka sína trú.

Fimmtudaginn 4. apríl bauð Agnes biskup fulltrúum rússnesku rétttrúnaðarkirkjunnar, séra Timur Zolotuskiy og grísku rétttrúnaðarkirkjunnar, metropolitan Cleophas Strongylis í biskupsgarð. Einnig voru viðstaddir aðalræðismaður Grikkja á Íslandi, Rafn Alexander Sigurðsson og eiginkona hans Anna Júlíana Sveinsdóttir, auk Þorvaldar Víðissonar biskupsritara.

Réttrúnaðarkirkjan í heiminum stendur á miklum tímamótum þessa stundina þar sem klofningur hefur myndast innan hennar. Rússneski Patríarkinn í Moskvu hefur tekið ekumeniska Patríarkann í Konstantínópel og alla sem honum fylgja út af bænaskrá sinni. Á síðasta ári klauf svo úkraínska rétttrúnaðarkirkjan sig frá henni rússnesku eftir þó nokkur ár af deilum milli landanna tveggja.

Agnes vildi með heimboðinu stuðla að samtali og vináttu á milli hópa sem ekki eru um allt sammála.  

Þjóðkirkjan óskar söfnuði grísku rétttrúnaðarkirkjunnar til hamingju með þennan stóra áfanga.

  • Frétt

Hildur Björk Hörpudóttir

Sr. Hildur Björk ráðin

22. nóv. 2024
...prestur við Glerárkirkju
Halldór Bjarki Arnarson

Tónlist fyrir okkar eirðarlausu tíma

22. nóv. 2024
... Halldór Bjarki Arnarson semballeikari
Kári Þormar og Hólmfríður Jóhannesdóttir

Heiðursgesturinn átti 80 ára fermingarafmæli

21. nóv. 2024
...fermingarafmælishátíð í Hafnarfjarðarkirkju