Helgihald og útivist

1. júní 2020

Helgihald og útivist

Við altarið á Esjubergi - helgistund

Guðsþjónustuhald var fjölbreytilegt í gær. Auk hefðbundins helgihalds var farið í gönguguðsþjónustur og skógarguðsþjónustur – og eflaust má tína til fleiri útgáfur.

Það sýnir sveigjanleika í helgihaldi sem er nauðsynlegur í nútímanum.

Kirkjufólk kann mjög vel að meta tilbreytingar í helgihaldi og lítur á þær sem viðbót við hið hefðbundna. Þá dregur helgihald sem er með öðrum brag en venja er margt fólk að sem annars tekur kannski lítinn þátt í kirkjulegu starfi – eða er jafnvel fráhverft því. Slíkt helgihald getur þannig verið heppilegur farvegur fyrir leitandi fólk og þau sem standa í dálítilli fjarlægð frá kirkjunni.

Allt þetta helgihald fer fram undir merki krossins.

Við hellinn í Hellisskógi skammt frá Selfossi fór fram helgihald sem sr. Guðbjörg Arnardóttir hafði umsjón með. Þar söng kirkjukórinn vor- og sumarsálma og önnur lög. Edit A. Molnár stjórnaði söngnum. Einn kórfélaganna lék á túbu og svo var boðið upp á skógar- og messukaffi eftir stundina.

Í Brautarholtssókn á Kjalarnesi var gengið frá Brautarholtskirkju, farin gamla þjóðleiðin í Esjuhlíðum og ferðinni heitið að útialtarinu við Esjuberg. Numið staðar á tveimur stöðum, Fólkvangi og Skrauthólum, farið með bæn og ritningarvers – og veitingar þegnar á síðarnefnda staðnum. Gangan tók tvo og hálfan tíma. Við altarið var stutt helgistund í umsjón sr. Örnu Grétarsdóttur, félagar úr kór Reynivallaprestakalls söng – stjórnandi var Guðmundur Ómar Óskarsson. Í lokin var boðið upp á kaffi og kleinur.

Þau á Seyðisfirði voru með göngumessu í samstarfi við gönguklúbb bæjarins og heilsueflandi samfélag. Þetta var þátttaka í hreyfiviku og helgihaldið var af því tilefni flutt út í Guðs græna náttúruna. Gengið var inn að Fjarðarseli og á leiðinni voru sungnir sálmar og lesnir ritningarlestrar. Messukaffi var inni í Fjarðarseli og var fólk hvatt til að koma með kaffi á brúsa og meðlæti. Helgihaldinu stýrði sr. Sigríður Rún Tryggvadóttir.

Þau sem ekki treystu sér til að ganga í göngumessunum voru hvött til að mæta á staðinn um líkt leyti og göngufólkið kom. Allt gekk það eins og í sögu.

Þátttakendur voru mjög ánægðir með helgihaldið við hellinn í Hellisskógi, Esjubergi og Fjarðarseli og allir á einu máli um að helgihald og útivist fari prýðilega saman.

hsh


Helgihald í Hellisskógi


Leikið á túbu í við hellinn sem Hellisskógur er kenndur við


Helgihald í Fjarðarseli





  • Menning

  • Messa

  • Safnaðarstarf

  • Samfélag

  • Trúin

  • Frétt

Hildur Björk Hörpudóttir

Sr. Hildur Björk ráðin

22. nóv. 2024
...prestur við Glerárkirkju
Halldór Bjarki Arnarson

Tónlist fyrir okkar eirðarlausu tíma

22. nóv. 2024
... Halldór Bjarki Arnarson semballeikari
Kári Þormar og Hólmfríður Jóhannesdóttir

Heiðursgesturinn átti 80 ára fermingarafmæli

21. nóv. 2024
...fermingarafmælishátíð í Hafnarfjarðarkirkju