Ólafsfjörður laus til umsóknar

23. júní 2020

Ólafsfjörður laus til umsóknar

Ólafsfjarðarkirkja - mynd: Sigurður Herlufsen

Biskup Íslands óskar eftir sóknarpresti til þjónustu í Ólafsfjarðarprestakalli, Eyjafjarðar og Þingeyjarprófastsdæmi.

Miðað er við að viðkomandi geti hafið störf 1. september, eða í síðasta lagi þremur mánuðum eftir að niðurstaða um ráðningu liggur fyrir.

 

Prestakallið Í Ólafsfjarðarprestakalli er ein sókn, Ólafsfjarðarsókn. Í prestakallinu eru tvær kirkjur, Ólafsfjarðarkirkja og Kvíabekkjarkirkja. Vísað er til þarfagreiningar sóknar prestakallsins varðandi frekari upplýsingar um starfið og starfsumhverfið. Þarfagreiningin er birt hér í framhaldi af auglýsingunni.

Allar gildar umsóknir fara til þriggja manna matsnefndar sem metur hæfni umsækjenda, sbr. 5. og 6. gr. „Starfsreglna um val og veitingu prestsembætta“.

Kjörnefnd Ólafsfjarðarprestakalls kýs sóknarprest úr hópi umsækjenda, að loknu valferli kjörnefndar, sbr. „Starfsreglur um val og veitingu prestsembætta“.

Fyrirvari Áskilinn er réttur til að skilgreina viðbótarskyldur við prófastsdæmið og önnur prestaköll innan þess, sem og við Þjóðkirkjuna – Biskupsstofu og aðra kirkjulega aðila.
Biskupafundur hefur unnið að breytingum á skipan prestakalla um allt land með sameiningum tveggja eða fleiri í eitt stærra prestakall án fækkunar presta. Ofangreind þjónusta er auglýst laus til umsóknar með þeim fyrirvara að vera má að biskupafundur leggi tillögur fyrir kirkjuþing er varða m.a. Ólafsfjarðarprestakall og sem kunna að leiða til breytinga á skipan prestakalla í prófastsdæminu, hljóti þær samþykki kirkjuþings.

Vakin er athygli á breyttri réttarstöðu starfsmanna kirkjunnar, þar með talið presta, sbr. viðbótarsamning íslenska ríkisins og Þjóðkirkjunnar frá 6. september 2019. Samningurinn hefur í för með sér breytingar á 22. gr. laga nr. 70/1996 um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins, en í umræddri grein voru prestar þjóðkirkjunnar tilgreindir sem embættismenn ríkisins. Eftir breytinguna eru prestar almennir starfsmenn Þjóðkirkjunnar – Biskupsstofu.

Nánari upplýsingar, t.d. starfskjör og helstu reglur og skyldur varðandi starfið, eru veittar hjá sr. Jón Ármanni Gíslasyni, prófasti Eyjafjarðar- og Þingeyjarprófastsdæmis, s. og hjá Þjóðkirkjunni - Biskupsstofu, s. 528 4000.

Umsóknarfrestur er til miðnættis þriðjudagsins 7. júlí 2020

Sjá nánar hér.

hsh
  • Biskup

  • Frétt

  • Menning

  • Samfélag

  • Starf

  • Auglýsing

Hildur Björk Hörpudóttir

Sr. Hildur Björk ráðin

22. nóv. 2024
...prestur við Glerárkirkju
Halldór Bjarki Arnarson

Tónlist fyrir okkar eirðarlausu tíma

22. nóv. 2024
... Halldór Bjarki Arnarson semballeikari
Kári Þormar og Hólmfríður Jóhannesdóttir

Heiðursgesturinn átti 80 ára fermingarafmæli

21. nóv. 2024
...fermingarafmælishátíð í Hafnarfjarðarkirkju