Tími framkvæmda

10. júlí 2020

Tími framkvæmda

Ungir verkamenn að störfum við Grensáskirkju

Víða má sjá iðnaðarmenn að störfum. Húsamálarar í hæstu hæðum uppi á þökum eða við veggi, múrarar með urgandi hrærivélar sínar og spaða, smiði með hvínandi vélsagir og tól. Vinnupallar hér og þar við hús. Og hamarshöggin dynja.

Já, og blessuð sólin skín. Kannski ekki alltaf. En oft. 

Sumarið vekur framkvæmdahug hjá mörgum enda kemur oft í ljós sitthvað sem þarf að laga fyrir veturinn eins og sagt er. Og það er líka hvati til framkvæmda að virðisaukaskattur skuli vera endurgreiddur: Allir vinna, sjá hér. 

Sprækir strákar Miklar framkvæmdir standa nú yfir í Grensáskirkju. Þau sem leið eiga þar um sjá að búið er fletta járni af suðurhlið kirkjunnar og þar sér í pappann undir. Hann var soðinn á og hefur haldið sér furðu vel eftir því sem verkamennirnir sögðu þá kirkjan.is leit þar við í morgun. Nýr pappi er settur yfir þann gamla og það var kominn tími á þakið eins og sagt er. Ungir og vaskir verkamenn, þeir Stefán Brynjar Stefánsson, og félagi hans, Ísak Elí Marinósson, voru að störfum við kirkjuna: „Það getur nú ekki verið biblíulegra nafn manns sem er að vinna við kirkjuna.“ Sprækir strákar og vandvirkir hjá Fagafli. Nýtt járn verður sett á kirkjuþakið.

Þak Grensáskirkjuer mjög svo bratt og það getur blásið í kringum hana enda hún í Hvassaleitinu. Kirkjan var vígð 1996 en áður var safnaðarheimilið notað sem kirkja og kom það til árið 1972. Glæsilegir steindir gluggar eftir Leif Breiðfjörð prýða kirkjuna en það var Kvenfélag Grensáskirkju sem gaf þá. Kirkjuna teiknaði Jósef Reynis, arkitekt.

Kirkjan.is innti Þuríði Guðnadóttur, kirkjuvörð, um framkvæmdirnar. Hún sagði að þær gengju bara vel fyrir sig. Þuríður sagði að til stæði að loka líka glerþaki sem er á milli kirkju og gangs. „Það hefur alltaf verið til vandræða vegna vatnsleka,“ sagði hún. Eins á að fara í framkvæmdir innan dyra. „Gólfið í safnaðarheimilinu þarf að taka upp og laga,“ sagði Þuríður. Hún sagði að einnig væri í bígerð að taka eldhúsið í safnaðarheimilinu í gegn.

Þá er verið að undirbúa framkvæmdir í kjallara kirkjunnar þar sem Tónskóli þjóðkirkjunnar var áður til húsa en hann flutti fyrir skömmu í Hjallakirkju í Kópavogi. Ný starfsemi í kjallaranum krefst nokkurra úrbóta.

Kirkjuna á að múra að utan og síðan verður hún máluð. Þetta eru miklar framkvæmdir og dýrar. Eitt er víst að þegar þær eru um garð gengnar mun allt kirkjuhúsið og safnaðarheimilið verða mikil hverfisprýði.

Kirkjumiðstöð Í Grensáskirkju fer fram mikil kirkjuleg starfsemi. Þar til húsa eru tveir prestar Fossvogsprestakalls hins nýja, þær dr. María Guðrúnardóttir Ágústsdóttir og sr. Eva Björk Valdimarsdóttir - en sóknarprestur er sr. Pálmi Matthíasson. Þar er og djákninn, Daníel Ágúst Gautason, en æskulýðsmál eru á hans könnu. Hólmfríður Ólafsdóttir, djákni, sér svo um öldrunarmálin. Organisti kirkjunnar er Ásta Haraldsdóttir. Sóknarnefndarformaður Grensássóknar er Erik Pálsson. - Þrír sérþjónustuprestar hafa þar aðsetur: sr. Guðný Hallgrímsdóttir, prestur fatlaðra, sr. Kristín Pálsdóttir, prestur heyrnarlausra, og sr. Sigrún Óskarsdóttir, fangaprestur. Æskulýðssamband kirkjunnar í Reykjavíkurprófastsdæmum (ÆSKR) hefur þar og sína miðstöð, framkvæmdastjóri er Kristján Ágúst Kjartansson. Þá er í húsinu Hjálparstarf kirkjunnar. Kirkjuvörður er Þuríður Guðnadóttir.

hsh


Norðurhlið kirkjunnar


Norðurhlið safnaðarheimilisins

 


  • Menning

  • Samfélag

  • Frétt

Sr. Stefán Már.jpg - mynd

Ályktun Presta- og djáknastefnu 2024

18. apr. 2024
...um mikilvægi barna- og unglingastarfs
Úlfastundir 5.jpg - mynd

Úlfastundir í Lágafellssókn

18. apr. 2024
...boðið upp á slátur og graut