Ekkert barn útundan

22. ágúst 2020

Ekkert barn útundan

Alltaf tínist eitthvað til við upphaf skólagöngu sem kostar aukalega

Barnafjölskyldur sem búa við fátækt njóta stuðnings Hjálparstarfs kirkjunnar þegar skólastarf fer aftur af stað á næstunni.

Flestir grunnskólanna verða settir nú á mánudaginn. 

Haustið er komið og með það koma „lítil börn með skólatöskur“, eins og hin ágæta skáldkona, Vilborg Dagbjartsdóttir, orðaði það í ljóði sínu Nú haustar að.

Og þetta haust sem öll önnur á ekkert barn að verða útundan sökum efnaleysis!

Hjálparstarf kirkjunnar tekur nú á móti umsóknum frá barnafjölskyldum sem búa við kröpp kjör um aðstoð í upphafi skólaárs.

Þrátt fyrir að námsgögn og ritföng séu orðin gjaldfrjáls í flestöllum grunnskólum landsins fylgir skólagöngu barna töluverður kostnaður sem efnalitlar fjölskyldur ráða illa eða ekki við.

Tekið er á móti umsóknum á skrifstofu Hjálparstarfsins á neðri hæð Grensáskirkju, Háaleitisbraut 66 í Reykjavík á virkum dögum klukkan 10.00 – 15.00 Vegna kórónuveirufaraldurs er fólk beðið um að panta tíma hjá félagsráðgjafa Hjálparstarfsins í síma 528-4400 áður en það kemur á staðinn.

Vilborg Oddsóttir félagsráðgjafi er umsjónarmaður innanlandsstarfs Hjálparstarfs kirkjunnar. Hún segir að umsóknum um efnislega aðstoð hafi fjölgað um 41% síðustu fimm mánuði miðað við sama tímabil í fyrra. „Við vitum svo að staðan verður erfið hjá mörgum í haust, ekki síst hjá barnafjölskyldum. Mjög stór hluti ráðstöfunartekna fjölskyldnanna sem til okkar leita fer í að greiða fyrir húsnæði og lítið er eftir til að fæða og klæða börnin. Okkar markmið er að börnin einangrist ekki félagslega vegna bágs efnahags fjölskyldunnar.“

Hjálparstarf kirkjunnar hefur jafnframt hafið fjáröflun fyrir verkefninu með því að senda valgreiðslu að upphæð 2.600 krónur í heimabanka landsmanna. 

kó/hsh

Nú haustar að
Einhverja nóttina koma skógarþrestirnir
að tína reyniber af trjánum
áður en þeir leggja í langferðina yfir hafið,
en það eru ekki þeir sem koma með haustið
það gera lítil börn með skólatöskur.

(Úr ljóðabókinni: Laufið á trjánum, eftir Vilborgu Dagbjartsdóttur).

  • Frétt

  • Hjálparstarf

  • Menning

  • Samfélag

  • Samstarf

  • Skipulag

  • Covid-19

Prestar í Reykjavíkurprófastsdæmi vestra ásamt fyrirlesurum

Vorfundur presta í Reykjavíkurprófastsdæmi vestra

26. apr. 2024
...síðasti prestafundur sr. Helgu Soffíu sem prófastur
Forsíðumynd-Sumardagurinn fyrst -skrúðganga á kirkjuplani.jpg - mynd

Sumardagurinn fyrsti í Bústaðakirkju

26. apr. 2024
...fjölsótt dagskrá í kirkjunni
Digraneskirkja

Laust starf

26. apr. 2024
...prests við Digranes- og Hjallaprestakall