Kirkja og menning: Vídalínsdagar

28. ágúst 2020

Kirkja og menning: Vídalínsdagar

Herra Jón Vídalín (1666-1720)

Nokkrir viðburðir eru í tengslum við 300. ártíð meistara Jóns Vídalíns, sem var biskup í Skálholti 1698 og til dauðadags.

Í dag verður útgáfuhátíð í Vídalínskirkju og hefst hún kl. 16.00. Tilefnið er nýútkomin ævisaga Jóns Vídalíns og ritverk hans, tveggja binda verk, sem Skálholtsútgáfan – útgáfufélag þjóðkirkjunnar, gefur út.
Athöfnin í Vídalínskirkju hefst á því að sr. Agnes M. Sigurðardóttir, biskup Íslands, ávarpar samkomuna. Síðan tekur forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson, til máls.

Þá mun sr. Jóna Hrönn Bolladóttir, sóknarprestur í Garðaprestakalli, flytja ávarp. Loks mun höfundur ævisögu Jóns Vídalíns, dr. Torfi K. Stefánsson Hjaltalín, ræða um verk sitt.

Streymt frá Vídalínskirkju.

Sunnudagurinn 30. ágúst er sá dagur er Jón biskup Vídalín lést í Biskupsbrekku við Uxahryggjaleið árið 1720. Biskup Íslands hefur hvatt presta til að minnast séra Jóns Vídalíns í ræðum sínum á sunnudaginn.

En Garðakirkja og Skálholtskirkja  skipa sess í ævi meistara Jóns Vídalíns. Þess vegna verður hans minnst í þeim kirkjum með sérstökum hætti í guðsþjónustum kl. 11.00 á sunnudaginn.

Jón Vídalín fæddist á Görðum á Álftanesi 21. mars 1666, varð þar prestur og síðar biskup í Skálholti og þar eru jarðneskar leifar meistarans geymdar í kirkjunni.

Síðdegis á sunnudeginum verður höfð um hönd helgistund í Þingvallakirkju og hefst hún kl. 15.30. Þar verður hringt sérstaklega þeirri klukku sem séra Jón Vídalín gaf kirkjunni árið sem hann vígðist til biskups í Skálholti, 1698. Þá verður einnig lesið úr prédikun hans frá 4. sd. eftir þrenningarhátíð, en hún er oft kölluð: Um lagaréttinn. Þessi dagskrá fer bæði fram innan kirkju og utan.

Sérstök helgistund verður í Biskupsbrekku kl.17.00 en þar lést séra Jón Vídalín 30. ágúst 1720. Þar verður og vígður nýr kross og afhjúpað minnismerki  sem Páll Guðmundsson á Húsafelli hefur gert fyrir forgöngu Skálholtsfélagsins hins nýja. Síðan geta þau sem það kjósa fylgt þeirri leið sem farin var þegar lík hins andaða biskups var flutt í Skálholt 2. september 1720. Legsteinn séra Jóns Vídalíns er í kjallara kirkjunnar og þar lýkur hinni formlegu dagskrá með bæn.

Um Jón Vídalín

hsh


  • Menning

  • Samfélag

  • Samstarf

  • Trúin

  • Viðburður

  • Frétt

Sr. Guðrún Karls Helgudóttir á biskupssofu

Fyrsti vinnudagurinn annasamur

01. júl. 2024
...hjá nýjum biskupi Íslands
For hope and future.jpg - mynd

Hjálparstarf Lútherska heimssambandsins gríðarlega mikilvægt

01. júl. 2024
...varaforseti skrifar um hjálparstarfið