Svipmyndir frá kirkjuþingi

16. september 2020

Svipmyndir frá kirkjuþingi

Á góðri stund á kirkjuþing. Frá vinstri: sr. Bryndís Malla Elídótttir, sr. Guðrún Karls Helgudóttir, Anna Guðrún Sigurvinsdóttir

Kirkjan.is var á vettvangi kirkjuþings og tók nokkrar myndir. Sjón er sögu ríkari og á það við um kirkjuþing eins og annað. Kirkjuþingsfulltrúar koma úr öllum stéttum samfélagsins. Þar er að finna verkfræðing, sálfræðing, viðskiptafræðing, kennara, félagsráðgjafa, bændur, organista, fólk sem rekur fyrirtæki, frumkvöðla, ökukennara, fyrrum fasteignasla og fyrrum skólastjóra - þannig mætti lengi telja - og svo náttúrlega presta. 

Hér eru nokkrar myndir.


Kaffið er nauðsynlegt til að halda fólki við efnið sem og vakandi. Frá vinstri: Steindór R. Haraldsson, Kjartan Sigurjónsso, Árný Herbertsdóttir og dr. Hjalti Hugason


Vaskur hópur: Guðmundur Þór Guðmundsson, skrifstofustjóri biskupsstofu og kirkjuþingsmaður, sr. Solveig Lára Guðmundsdóttir, sr. Agnes M. Sigurðardóttir, sr. Kristján Björnsson og 
sr. Þorvaldur Víðisson, biskupsritari


Hér er eitthvað athugavert að mati glöggra manna: Kjartan Sigurjónsson, organisti, og Hreiðar Örn Zoëga Stefánsson, ökukennari


Kirkjuþing í góðum félagsskap á Grand Hotel Reykjavík


Anna Guðrún Sigurvinsdóttir, formaður framtíðarnefndar,flytur ræðu


Vígslubiskupinn á Hólum, sr. Solveig Lára, sat ekki auðum höndum


Sálfræðingurinn Kolbrún Baldursdóttir í ræðustól, alvön sem borgarfulltrúi að fjalla um stór mál sem smá


Miðað við umhverfið gæti þetta verið á vakningasamkomu, kross og Biblía. En hér er það hinn þrautreyndi kirkjumaður, Stefán Magnússon, bóndi, sem hefur orðið og er einbeittur á svip að vanda


Helgihald á kirkjuþingi. Steindór R. Haraldsson les, frá vinstri: Anna Guðrún Sigurvinsdóttir, Hreiðar Örn Zoëga Stefánsson, Árni Herbertsdóttir, og sr. Agnes M. Sigurðardóttir, biskup


Sr. Arna Grétarsdóttir. Tillaga að myndatexta: Skilið þið mig ekki?


Nýr kirkjuþingsmaður - Hermann Ragnar Jónsson, fyrrverandi fasteignasali


Drífa Hjartardóttir, forseti kirkjuþings, og sr. Gísli Jónasson, formaður fjárhagsnefndar. Sr. Þuríður Björg Wiium Árnadóttir fyrir austan á skjánum


Gaman hjá þessum körlum: Guðlaugur Óskarsson, einn varaforseta kirkjuþings, sr. Kristján Björnsson, vígslubiskup í Skálholti, og Kjartan Sigurjónsson, organisti


Séð yfir fundarsalinn - gott rými var á milli kirkjuþingsmanna - og sóttvarnir í hávegum hafðar


Fundarhlé getur verið kærkomið


Sr. Hildur Inga Rúnarsdóttir flytur ræðu og notar hendur til áherslu


Organistinn og sveitapresturinn. Kjartan Sigurjónsson og sr. Gísli Gunnarsson í Glaumbæ


Kaffihlé og konfekt: Dr. Hjalti Hugason, Ólína Hulda Guðmundsdóttir, Árný Ingimarsdóttir, sr. Guðrún Karls Helgudóttir, Árný Herbertsdóttir, sr. Kristján Björnsson og sr. Þuríður Björg Wiium Árnadóttir


Fjárhagsnefndi á fundi á P-hæð í Grand Hotel Reykjavík sem er sú 13da. Fjármál kirkjunnar hvíla á herðum fjárhagsnefndar kirkjuþings - og það er ekki lítið - frá vinstri: sr. Gísli Gunnarsson, sr. Þuríður Björg Wiium Árnadóttir, Kjartan Sigurjónsson, Hermann Ragnar Jónsson, sr. Gísli Jónasson, formaður nefndarinnar. Sr. Hreinn S. Hákonarson, fjárhagsnefndarmaður, tók myndina.


Tæknimennirnir: Daníel Máni Davíðsson, frá Sonik, og Hermann Björn Erlingsson, verkefnisstjóri upplýsingamála


Svana Helen Björnsdóttir situr í kirkjuráði - hún er verkfræðingur


Guðlaugur Óskarsson í ræðustól - fyrrum skólastjóri all alvarlegur á svip eins og einhver hafi gert eitthvað sem ekki átti að gera - Drífa Hjartardóttir, forseti kirkjuþings, líka alvörufull á svip. Sr. Þuríður Björg Wiium Árnadóttir fylgist með


Engin aldurstakmörk á kirkjuþingi. Sr. Þuríður Björg Wiium Árnadóttir, yngst, og organistinn Kjartan Sigurjónsson, elstur. Hálf öld á milli þeirra. 


Matur er mannsins megin - kokkinum þakkað fyrir frábæran mat

hsh

  • Frétt

  • Leikmenn

  • Menning

  • Prestar og djáknar

  • Samfélag

  • Samstarf

  • Þing

  • Viðburður

  • Biskup

Hildur Björk Hörpudóttir

Sr. Hildur Björk ráðin

22. nóv. 2024
...prestur við Glerárkirkju
Halldór Bjarki Arnarson

Tónlist fyrir okkar eirðarlausu tíma

22. nóv. 2024
... Halldór Bjarki Arnarson semballeikari
Kári Þormar og Hólmfríður Jóhannesdóttir

Heiðursgesturinn átti 80 ára fermingarafmæli

21. nóv. 2024
...fermingarafmælishátíð í Hafnarfjarðarkirkju